Fimmtán mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn átta ára stúlku 4. mars 2010 16:36
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku sem var átta ára gömul þegar brotin voru framin. Honum var gefið að sök að hafa þuklað kynfæri hennar innan og utan klæða og var hann sakfelldur fyrir það. Honum var einnig gefið að sök að hafa sleikt kynfæri stúlkunnar og stungið fingri inn í leggöng hennar en Hæstiréttur sýknaði manninn af þeim ásökunum. Maðurinn játaði fyrri brotin en neitaði hinum seinni staðfastlega. Að mati dómsins eru brot mannsins mjög alvarleg en honum hafði verið falið að gæta stúlkunnar og leyfði hann henni að gista á heimili sínu þar sem hún bjó við erfiðar heimilisaðstæður. Í stað þess að veita stúlkunni skjól hefði hann hins vegar beitt hana grófu kynferðisofbeldi og brugðist algerlega trausti hennar. Dómurum þótti því hæfileg refsing í málinu vera 15 mánaða fangelsi auk þess sem maðurinn þarf að greiða telpunni 700 þúsund krónur í miskabætur. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í 12 mánaða fangelsi og til þess að greiða stúlkunni 600 þúsund í miskabætur. Lögmaður telpunnar fór fram á að miskabæturnar yrðu ein milljón króna og skilaði einn dómari, Ólafur Börkur Þorvaldsson sératkvæði og vildi hann fallast á þá kröfu.
Mest lesið „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Innlent Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Erlent Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Innlent Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Innlent „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Verða bílveikari í rafbílum Innlent Drónamálið enn óupplýst: „Við erum heimskir nýgræðingar“ Erlent Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Innlent Aðferðum svipi til þeirra hjá Quang Le Innlent Fleiri fréttir Gripnir glóðvolgir með íslensk lundaegg í Hollandi Stúdentar leggjast gegn sameiningunni Ekki slys á gangandi vegfarenda í „hættulegum beygjuvösum“ í tuttugu ár Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Nýtt stjórnsýslustig framhaldsskóla: „Þetta er eins og vont trúðaleikrit“ Bein útsending: Gervigreind og vísindamiðlun Gular viðvaranir vegna úrkomu og aukin skriðuhætta Aðferðum svipi til þeirra hjá Quang Le Leiðbeinandinn á Múlaborg í gæsluvarðhaldi í mánuð í viðbót Jarðvarmi enn mikilvægari en áður var talið Hyggst leggja af jafnlaunavottun í núverandi mynd Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Bein útsending: Jarðhiti jafnar leikinn Látinn laus en rannsókn enn í fullum gangi „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Sýknudómur í máli Aðalsteins gegn Páli stendur Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Áflog og miður farsæl eldamennska Verða bílveikari í rafbílum „Þetta var óvenjuleg ræða“ Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Sjá meira