Lífið

Vonar að „Dude“ fái Óskarinn

Svavar og ólafur Svavar Helgi og Ólafur Sverrir skipuleggja The Big Lebowski-hátíðina í fjórða sinn.fréttablaðið/valli
Svavar og ólafur Svavar Helgi og Ólafur Sverrir skipuleggja The Big Lebowski-hátíðina í fjórða sinn.fréttablaðið/valli

Fjórða árlega Big Lebowski-hátíðin verður haldin laugardagskvöldið 13. mars í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Samnefnd gamanmynd um hinn lata keiluspilara „The Dude“ og vandræði hans kom út 1998 og síðan þá hefur myndast í kringum hana hálfgerður sértrúarsöfnuður, bæði hér heima og erlendis.

„Við erum að reyna að gera þetta ódýrara núna þannig að þetta verður aðeins vænna fyrir budduna,“ segir Svavar Helgi Jakobsson, sem skipuleggur hátíðina ásamt Ólafi Sverri Jakobssyni. Miðann má kaupa á Bolur.is og kostar hann 2.010 krónur. Innifalið er þátttaka í hátíðinni, keila og Lebowski-stuttermabolur. Myndin The Big Lebowski verður að sjálfsögðu sýnd og eftir það er komið að keilunni. Búningakeppni verður einnig haldin, sem jafnan hefur vakið mikla lukku.

„Að minnsta kosti helmingurinn hefur mætt í búningum og sumir leggja alveg þvílíkan metnað í þetta,“ segir Svavar Helgi.

Um fimmtíu manns hafa mætt síðustu tvö skipti og skemmt sér hreint prýðilega. „Það er alltaf ótrúlegt hvað fólk getur skemmt sér ágætlega þótt það þekkist ekki neitt.“

Jeff Bridges, aðalleikari The Big Lebowski, gæti hreppt Óskarsverðlaunin í fyrsta sinn á sunnudagskvöld fyrir hlutverk sitt í Crazy Heart.

„Ég sé hann alltaf sem sama hauginn sama hvað hann gerir. Maður sér alltaf „dúdinn“ í honum. Mér skilst að hann sé mjög „dúdalegur“ í þessari mynd þannig að maður verður að sjá hana,“ segir Svavar og telur löngu tímabært að sinn maður hreppi styttuna eftirsóttu. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.