Gott hjarta Dags Kára frumsýnt 4. mars 2010 06:00 Þríeykið Dagur Kári ásamt þeim Paul Dano og Brian Cox. Myndin The Good Heart verður frumsýnd á föstudaginn.
Loksins, loksins, kynnu einhverjir að hugsa því á föstudaginn verður kvikmynd Dags Kára, The Good Heart, frumsýnd. Myndarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda Dagur Kári einn fremsti kvikmyndagerðarmaður okkar Íslendinga. Töluvert hefur verið skrifað um The Good Heart en upphaflega stóð til að þeir Tom Waits og Ryan Goosling myndu leika aðalhlutverkin í þessari mynd. En sökum þess að ekki tókst að samræma dagskrá þeirra var fallið frá þeirri hugmynd. Þeir sem komu í staðinn eru engu síðri en það eru breski stórleikarinn Brian Cox og bandaríska ungstirnið Paul Dano. The Good Heart segir frá rosknum bareiganda að nafni Jacques sem á í vandræðum með bæði skap sitt og hjarta. Þegar Jacques hittir hinn heimilislausa Lucas á sjúkrahúsi eftir enn eitt hjartaáfallið ákveður gamli maðurinn að taka Lucas upp á sína arma og kenna honum hvernig á að reka bar í þeirri von að Lucas muni taka við af honum þegar hann deyr. Meðal annarra leikara má nefna franska ungstirnið Isild Le Besco en þrátt fyrir að flestir leikaranna séu erlendir eru áhorfendur beðnir um að fylgjast með íslenskum statistum; meðal þeirra eru kaffihúsaeigandinn Friðrik Weisshappel og listamaðurinn Haraldur Jónsson. Dagur Kári verður í viðtali við tímaritið Föstudag á föstudaginn.
Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fleiri fréttir Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka Sjá meira