Djöflasýrubeikon auglýsir úlpur 4. mars 2010 06:00 bacon live support unit Úr myndbandi við lagið „Things“, sem Fiona Cribben – „búningahönnuður frá helvíti“ eins og Bogi kallar hana – gerði. „
Fyrir einhverja hundaheppni gátum við selt gamalt lag í North Face-auglýsingu í Japan og fengum nógu mikið af peningum til að gera heila plötu. Og þetta er hún," segir Bogi Reynisson í hljómsveitinni Bacon Live Support Unit um plötuna Rodentmaster sem er nýkomin út. „Þessi kona hafði bara samband. Hún hafði heyrt lagið Powerprest - ég veit ekkert hvernig hún heyrði það, líklega á ferðalagi hérna - og vildi endilega fá að nota það. Og við bara, já já, endilega." North Face selur útivistarfatnað, en Bogi segir Bacon langt í frá flytja eitthvert útivistarrokk. „Við spilum einhverja djöflasýru. Við erum tiltölulega lausir við það að þurfa að gera einhverjum til geðs nema okkur sjálfum. Við gerum bara þá tónlist sem við myndum vilja heyra sjálfir. Og það er frekar drungaleg tónlist þessa dagana," segir hann. Bogi var á árum áður m.a. í Stjörnukisa og Sororice, en með honum í Beikoni eru Maggi trommari sem m.a. var í Bleiku böstunum, Guðmundur sem var í 2001, Pétur sem var í Skátum og Gísli sem var í Stjörnukisa. Rodentmaster inniheldur níu lög sem eru öll flutt og samin af hljómsveitinni sjálfri, nema titillagið Rodentmaster sem samið er af Páli Thayer. Þrjú laganna eru sungin. Fyrir nokkrum árum gerði Bacon þrjár styttri plötur (Krieg, Jenny og Kamel), sem Bogi segir að innihaldi hálfgerð demó. Sum þeirra laga eru á nýju plötunni í fyllri útgáfum. Platan fæst í helstu plötubúðum og einnig er hægt að nálgast hana á gogoyoko.com þar sem hægt er að hlusta á hana í heild sinni án endurgjalds. Útgáfutónleikarnir verða í kjallara Kaffi Kúltúra laugardagskvöldið 13. mars og verður ókeypis inn. - drg
Mest lesið Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Lífið Fleiri fréttir Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Sjá meira