„Tíu þúsund lítrar eru ekki neitt“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 13. ágúst 2010 12:15 Hlédís Sveinsdóttir, formaður Beint frá býli.
Samtökin Beint frá býli vilja að heimild til heimaframleiðslu utan kvótakerfis í umdeildu mjólkurfrumvarpi sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra verði hækkuð úr tíu þúsund lítrum í þrjátíu þúsund. Samtökin segja að frumvarpið gangi ekki nógu langt í núverandi mynd. Eins og fréttastofa hefur greint frá í umfjöllun um mjólkurfrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þá gerir frumvarpið ráð fyrir að afurðastöðvum sem framleiði utan kvótakerfisins í landbúnaði verði refsað með fésektum. Þá er nýmæli í lögunum sem gerir ráð fyrir að markaðsfæra megi afurðir úr tíu þúsund mjólkurlítrum utan afurðastöðva, þ.e í heimaframleiðslu en í gildandi lögum er ekki gert ráð fyrir heimavinnslu bænda. Framleiðendum þessara afurða verður jafnframt ekki refsað. Samtökin Beint frá býli gagnrýna frumvarpið og segja að tíu þúsund lítrar séu allt of lítið, en eins og fréttastofa hefur greint frá eru jafngilda tíu þúsund mjólkurlítrar ársframleiðslu einnar góðrar mjólkurkýr. „Tíu þúsund lítrar eru ekki neitt, ef þetta á að vera raunveruleg búbót fyrir bændur, framleiðendur, þá þarf þetta að vera miklu hærra og í raun og veru er óþarft að hafa eitthvað þak, en við báðum um þrjatíu þúsund lítra," segir Hlédís Sveinsdóttir, formaður Beint frá býli. Hún segir að til þess að bændur geti farið fjárfestingar þurfi magnið sem framleiða megi að vera nægilega mikið að fjárfestingarnar borgi sig. Um það bil fjórir til sex bændur á Íslandi eru í heimaframleiðslu á mjólkurafurðum í dag. „Ef við segjum að hver framleiðandi noti þrjátíu þúsund lítra og hver bóndi noti og það séu tíu framleiðendur gróft reiknað, fleiri en þeir eru í raun, þá eru þetta þrjú hundruð þúsund lítrar eða 0,25 prósent af þessum hundrað og nítján milljónum lítra sem var heildargreiðslumarki á síðasta verðlagsári. 0,25 prósent eru ekki neitt, neitt," segir Hlédís.
Tengdar fréttir Undanþága Jóns á við tvær góðar kýr utan kvóta Mjólkurfrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gerir ráð fyrir undanþágu handa þeim sem framleiða 15 þúsund lítra af mjólkurafurðum í heimaframleiðslu utan kvótakerfis, en þeim verður ekki refsað. Magnið jafngildir ársframleiðslu tveggja góðra mjólkurkúa. 11. ágúst 2010 18:43 Þingmaður Framsóknar: Ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins Fulltrúi Framsóknarflokks í landbúnaðarnefnd segir ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins um mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en eftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarpið. Hann segir að reglur þurfi að gilda um markaðinn og óheft samkeppni og markaðshyggja hafi ekki farið vel með Vesturlönd. 9. ágúst 2010 12:26 Vinnur gegn hagsmunum bænda og neytenda Neytendasamtökin fullyrða að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra vinni gegn hagsmunum bænda og neytenda. Verði frumvarpið samþykkt verður einokun fest í sessi að mati samtakanna og því vilja þau að frumvarpið verði fellt á Alþingi. 10. ágúst 2010 14:43 Sjálfstæðismenn styðja mjólkurfrumvarp Annar fulltrúa Sjálfstæðisflokks í landbúnaðarnefnd segist standa við stuðning sinn við mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en hinn segir gagnrýni á frumvarpið sem fram hefur komið ekki eiga rétt á sér. Báðir eru þeir þó sammála um að landbúnaðarnefnd þurfi að fara yfir málið í ljósi gagnrýninnar og útiloka ekki að frumvarpið taki breytingum. 10. ágúst 2010 12:16 Telur mjólkurfrumvarpið kalla á endurskoðun landbúnaðarkerfisins Ekki ríkir sátt um mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra milli stjórnarflokkanna, en Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hafi gert grundvallarathugasemdir við að hugsanlega bryti frumvarpið gegn stjórnarskrá. Hún segist vona að umræðan um frumvarpið verði til þess að landbúnaðarkerfið verði endurskoðað frá grunni. 12. ágúst 2010 12:20 Ráðherra greinir á um ágæti mjólkurfrumvarps Fjármálaráðherra segist ósammála Samkeppniseftirlitinu um að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra sé skaðlegt samkeppni. Þá greinir efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra á um kosti frumvarpsins, en sá fyrrnefndi er sammála sjónarmiðum Samkeppniseftirlitsins. 10. ágúst 2010 18:45 Mest lesið Lýsa eftir Hlyni Innlent Hörður Svavarsson er látinn Innlent Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Innlent Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Innlent Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Innlent „Er allt komið í hund og kött?“ Innlent Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Innlent Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Innlent Fleiri fréttir Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Ein bílferð jafngildi tuttugu þúsund mótorhjólaferðum Sjá meira
Undanþága Jóns á við tvær góðar kýr utan kvóta Mjólkurfrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gerir ráð fyrir undanþágu handa þeim sem framleiða 15 þúsund lítra af mjólkurafurðum í heimaframleiðslu utan kvótakerfis, en þeim verður ekki refsað. Magnið jafngildir ársframleiðslu tveggja góðra mjólkurkúa. 11. ágúst 2010 18:43
Þingmaður Framsóknar: Ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins Fulltrúi Framsóknarflokks í landbúnaðarnefnd segir ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins um mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en eftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarpið. Hann segir að reglur þurfi að gilda um markaðinn og óheft samkeppni og markaðshyggja hafi ekki farið vel með Vesturlönd. 9. ágúst 2010 12:26
Vinnur gegn hagsmunum bænda og neytenda Neytendasamtökin fullyrða að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra vinni gegn hagsmunum bænda og neytenda. Verði frumvarpið samþykkt verður einokun fest í sessi að mati samtakanna og því vilja þau að frumvarpið verði fellt á Alþingi. 10. ágúst 2010 14:43
Sjálfstæðismenn styðja mjólkurfrumvarp Annar fulltrúa Sjálfstæðisflokks í landbúnaðarnefnd segist standa við stuðning sinn við mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en hinn segir gagnrýni á frumvarpið sem fram hefur komið ekki eiga rétt á sér. Báðir eru þeir þó sammála um að landbúnaðarnefnd þurfi að fara yfir málið í ljósi gagnrýninnar og útiloka ekki að frumvarpið taki breytingum. 10. ágúst 2010 12:16
Telur mjólkurfrumvarpið kalla á endurskoðun landbúnaðarkerfisins Ekki ríkir sátt um mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra milli stjórnarflokkanna, en Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hafi gert grundvallarathugasemdir við að hugsanlega bryti frumvarpið gegn stjórnarskrá. Hún segist vona að umræðan um frumvarpið verði til þess að landbúnaðarkerfið verði endurskoðað frá grunni. 12. ágúst 2010 12:20
Ráðherra greinir á um ágæti mjólkurfrumvarps Fjármálaráðherra segist ósammála Samkeppniseftirlitinu um að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra sé skaðlegt samkeppni. Þá greinir efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra á um kosti frumvarpsins, en sá fyrrnefndi er sammála sjónarmiðum Samkeppniseftirlitsins. 10. ágúst 2010 18:45