Hvítabjörn dró kajakræðara út úr tjaldinu Óli Tynes skrifar 30. júlí 2010 14:58 Hvítabjörninn var mikil skepna. Mynd/Sýslumaðurinn á Svalbarða
Ungur norskur kajakræðari þykir hafa sýnt bæði snarræði og kjark þegar hann bjargaði félaga sínum úr kjafti hvítabjarnar. Sebastian Plur Nilssen (22) og Ludvig Fjeld (22) ætluðu að verða fyrstir manna til þess að róa kajökum sínum umhverfis Svalbarða. Það er um 2000 kílómetra vegalengd. Þeir lögðu af stað sjötta júlí síðastliðinn og áætluðu að leiðangurinn tæki tvo til þrjá mánuði. Kom þjótandi með riffilinn Á miðvikudagskvöldið réru þeir í land eins og venjulega og slógu upp tjaldi. Og vöknuðu við það um nóttina að hvítabjörn réðist þar inn. Hann greip Sebastian í kjaftinn og dró hann á öxlinni út úr tjaldinu. Hann var kominn með hann eina fjörutíu metra eftir ströndinni þegar Ludvig kom þjótandi með riffil þeirra félaga. Björninn sleppti Sebastian um leið og fyrsta skotið hitti hann, en Ludvig tók enga áhættu og skaut í hann þrem skotum til viðbótar. Þá var björninn augljóslega steindauður. Sebastian var með mörg bitsár á efri hluta líkamans og eins á höfði og hnakka. Sárin voru þó ekki lífshættuleg. Hvítabirnir friðaðir Ludvig hafði samband við yfirvöld í Longyearbyen sem sendi þyrlu eftir þeim. Sebastian gekkst svo undir aðgerð á sjúkrahúsinu í Longyearbyen. Hvítabirnir eru friðaðir á Svalbarðal. Sýslumaðurinn þar sagði hinsvegar augljóst að dýrið hafi verið drepið í sjálfsvörn og eftirmáli því enginn.
Mest lesið „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Innlent „Algjörlega alveg út í hött“ Innlent Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Innlent Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Erlent Umferðin færist inn á íbúðagötur Innlent Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast Innlent Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Erlent Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Innlent Loftárásir í kjölfar ákalls Trumps Erlent Fleiri fréttir Loftárásir í kjölfar ákalls Trumps Flogið á ný í München eftir mögulegt drónaflug Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Hamasliðar tilbúnir að sleppa gíslum og láta völd af hendi Hótar helvíti á jörð samþykki Hamas ekki tillögurnar Vísa frá máli á hendur skipverjum sem voru taldir hafa slitið sæstrengi „Það vill enginn spila eftir reglum sem eru samdar annars staðar“ Rekja andlát dóttur að hluta til samsæriskenninga móður Fyrsta konan sem verður erkibiskupinn af Kantaraborg Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Einn hinna látnu skotinn af lögreglu og annar særður Finna mikla nálykt frá rústunum Bein útsending: Siglt áleiðis til Gasa Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Hamas liðar vilja ekki afvopnast Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Nafngreina árásarmanninn í Manchester Segist eiga í vopnuðum átökum við eiturlyfjasmyglara Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Afganir fagna því að vera aftur komnir í samband við umheiminn Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Sjá meira