Dómnum verður áfrýjað 9. júní 2010 05:00 Hjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir.
Héraðsdómur Reykjavíkur segir að 155 milljóna króna afsláttur sem félagið Rauðsól hafi fengið af 1.500 milljóna greiðslu vegna kaupa á 365 miðlum hafi í raun verið gjöf til Rauðsólar. Félaginu beri því að greiða 160 milljónir króna til þrotabús Íslenskrar afþreyingar hf. - sem áður hét 365 hf. Hilmar Gunnarsson, lögmaður Rauðsólar (365 miðla), segir að dómnum verði áfrýjað. „Við teljum að fullnaðaruppgjör hafi farið fram en ekki hafi verið tekið tillit til greiðslna sem fóru frá félaginu til Íslenskrar afþreyingar," segir Hilmar. Rauðsól er félag sem stofnað var í október 2008 og var að fullu í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Félagið keypti í byrjun nóvember það ár alla hluti 365 hf. í félaginu 365 miðlar sem sett var saman utan um fjölmiðlahluta 365 samsteypunnar. Auk þess sem Rauðsól yfirtók 4.400 milljóna króna skuldir með 365 miðlum átti Rauðsól að greiða 1.500 milljóna í peningum. Af þeim voru greiddar 1.340 milljónir króna. Rauðsól hefur í dag verið sameinuð 365 miðlum og nafni gamla móðurfélagsins var breytt úr 365 hf. í Íslensk afþreying sem síðar fór í þrot. Það var skiptastjóri þess þrotabús sem stefndi Rauðsól (365 miðlum) fyrir dóm til að fá samningnum um áðurnefndan afslátt rift. Fyrirsvarsmenn 365 miðla sögðu að afslátturinn hefði byggst á því að staða félagsins við söluna til Rauðsólar hefði verið verri en talið var. Því hafnar héraðsdómur. „Sömu lykilstjórnendur voru í báðum félögum og sátu þeir stjórnarfundi og undirrituðu samninga þá er deilt er um í máli þessu. Það var því hluti af starfsskyldum þeirra og ábyrgð að byggja samninga sína á fullnægjandi upplýsingum," segir í dómnum.
Mest lesið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Erlent Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Innlent Selfoss stöðvaður í Bretlandi Innlent Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Björg býður ungliðum til fundar Innlent Fleiri fréttir Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Takmarka fjölda nemenda utan EES Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Mikill meirihluti ánægður með að Ísland taki ekki þátt Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Pollróleg þó starfsáætlun þingsins hafi verið felld úr gildi Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Ragnhildur nýr framkvæmdastjóri Píeta samtakanna Sjá meira