Ég vona að hann rotni í helvíti Óli Tynes skrifar 19. júlí 2010 11:09 Raoul Moat
Þegar hann var að ljúka við að afplána fangelsisdóm fyrir ofbeldisbrot hafði Raoul Moat samband við kunningja sem útvegaði honum afsagaða haglabyssu. Tveim dögum eftir að hann var látinn laus sat hann fyrir hinni tuttugu og tveggja ára gömlu Sam Stobbart og Chris Brown nýjum kærasta hennar. Brown var 29 ára gamall en Moat var 37 ára. Stobbart hefur lýst atburðarásinni fyrir dagblaðið News of The World. Hún segir að þau hafi verið að ganga út úr húsi foreldra hennar þegar Moat skyndilega stökk fram. Hann sagði ekki aukatekið orð en skaut Chris Brown í fæturna af dauðafæri. Hann skaut hann svo öðru skoti í bakið og því þriðja í höfuðið. Meðan Moat var að hlaða haglabyssuna stökk Stobbart aftur inn í húsið þar sem nítján mánaða dóttir þeirra Moats var sofandi. Moat skaut þá á hana í gegnum glugga og hitti hana í magann. Stobbart bar vinstri handlegginn fyrir sig og læknar segja að það hafi bjargað lífi hennar því hann tók mesta höggið af skotinu. Stobbart segir að móðir hennar Lesley hafi hlaupið út úr húsinu og æpt á Moat; -Þú skaust barnið mitt, skjóttu mig ódámurinn þinn. Fósturfaðir Stobbart Paul hljóp einnig út úr húsinu og sá að Moat beindi haglabyssunni að höfði Lesley. Paul segir að þeir hafi horfst í augu og að augnaráð Moats hafi verið gersamlega tilfinningalaust. Eitthvað hafi hann þó rankað við sér og hann hljóp á brott án þess að skjóta Lesley. Daginn eftir skaut hann svo lögreglumann í andlitið með þeim afleiðingum að hann blindaðist. Eftir vikulangan feluleik svipti Moat sig svo lífi þegar lögreglan hafði umkringt hann. Kveðjuorð Sam Stobbart til fyrrverandi kærasta síns eru; -Ég vona að hann rotni í helvíti.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira