Superman bjargaði deginum Óli Tynes skrifar 4. ágúst 2010 14:19 Is it a bird?
Fjölskylda í suðurríkjum Bandaríkjanna var búin að missa heimilið sitt í hendur bankans. Hún var með tárin í augunum að pakka niður búslóðinni þegar nokkur gömul Superman blöð komu upp úr kassa í risinu. Einhvern rámaði í að gamalt Superman blað hefði verið selt fyrir háa upphæð ekki alls fyrir löngu. Fjölskyldan hafði samband við ComicConnect.com sem sá um þá sölu. Fjölskyldan óskar nafnleyndar en Vincent Zurzolo einn eigenda ComicConnect sagði í samtali við ABC fréttastofuna að fjölskyldan hefði sannarlega dottið í lukkupottinn. Eitt blaðanna sé frá júní 1938. Það sé bæði óskaplega sjaldgæft og vel með farið. Þeir hefðu því fyrir hönd fjölskyldunnar haft samband við bankann og beðið hann um að bíða með útburðinn. Fjölskyldan ætti von á peningum sem myndu meira en duga fyrir skuldinni. Superman blaðið verður selt á uppboði á næstunni og lágmarksboð verður 250 þúsund dollarar. Það gerir um 30 milljónir króna. En það er lágmarksboðið. Annað Superman blað frá svipuðum tíma seldist á endanum fyrir eina og hálfa milljón dollara. Það gerir tæpar 180 milljónir króna.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira