Kvennó-Edda Leikfélagid Fúría skrifar 17. mars 2010 01:24 Óðinn ásamt æsunum
Fúría, leikfélag Kvennaskólans, frumsýndi Kvennó Eddu 13. Mars síðastliðinn. Kvennó Edda fjallar um örlög og átök í norrænni goðafræði. Leikritið er frumsamið en í því spila örlaganornirnar Urður, Verðandi og Skuld lykilhlutverk. Þær kenna óreyndum völvum að magna seið, spá og galdra. Málin snúast í höndunum á þeim þegar ein af ungu völvunum slysast til að segja Óðni að Baldur verði drepinn og Ragnarök vofi yfir. Þegar mest á reynir koma í ljós brestir í samstöðu Urðar, Verðandi og Skuldar. Kvennó Edda er uppfull af gríni, söng, dansi og dauðsföllum en inn í söguna fléttast sögur af ásum, einherjum, þursum og dvergum. „Þetta er búið að vera skrýtið og skemmtilegt æfingatímabil. Sum okkar eru nýbúin að taka próf í goðafræðinni en svo fer maður með sama námsefni upp á svið og þá eru allir í hláturskasti.“ Segir Ari Freyr Ísfeld sem leikur Óðinn í sýningu Kvennaskólans. Leikstjórnin er í höndum Árna Kristjánssonar og Bryndísar Óskar Þ. Ingvarsdóttur, en þau hafa kennt spuna í Kvennaskólanum síðastliðin tvö ár. Ásamt því hefur Árni leikstýrt Iðnaðarmannaleikhúsinu og leikhópnum Mixed theatre í London. Kvennó Edda er sýnd í Uppsölum Kvennaskólans og Árni segir að aldrei hafi annað komið til greina en að sýna þar: „Menningararfurinn snýst að svo stórum hluta um fólkið sem deilir honum sín á milli. Það er látlaus og heimilislegur andi yfir Uppsölum Kvennaskólans og okkur Bryndísi fannst hann fullkominn fyrir Kvennó Eddu.“ Næstu sýningar eru eftirfarandi; 18.mars 20:00 20.mars 18:00 20.mars 22:00 21.mars 20:00 23.mars 20:00 24.mars 20:00 Miðapantanir eru í síma 821-3775 og á leikfelagidfuria@gmail.com. Sýnt verður í Uppsölum Kvennaskólans (Þingholtsstræti 37). Þessi frétt er skrifuð af fulltrúa Kvennó fyrir Skólalífið á Vísi.
Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Fleiri fréttir Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir Sjá meira