160 kindur fjarlægðar 30. janúar 2010 08:00 Eftirliti með búfjárhaldi á Stórhóli verður haldið áfram.
Samtals 160 kindur voru teknar af sauðfjárbýlinu Stórhóli í Djúpavogshreppi í fyrrakvöld. Þetta staðfestir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir. Ábúandi Stórhóls var fyrir dómi í desember vegna vanfóðrunar og óviðunandi aðbúnaðar sauðfjár. Málinu lauk með dómsátt, þar sem bóndanum var gert að greiða áttatíu þúsund krónur í ríkissjóð. Að sögn Halldórs var gripið til þessa úrræðis nú þar sem talið er að ekki hafi verið húspláss fyrir þennan hóp. Talið er að fjárhúsin á Stórhóli rúmi 820 og var hópurinn umfram þá tölu. Ábúendur fengu fjögurra sólarhringa andmælarétt, en féð er á vegum Djúpavogshrepps nú. Halldór segir að héraðsdýralæknir hafði gert úttekt á aðstæðum á Stórhóli í desember. Í kjölfarið hafi verið gerð krafa um tilteknar úrbætur. Í janúar hafi frestur til að gera úrbæturnar verið runninn út. „Þá hafði það ekki verið lagað sem þurfti að laga,“ segir Halldór. „Þess vegna var farið í að vörslusvipta ábúendur því fé sem var umfram það sem þeir gátu haft. Síðan á eftir að koma í ljós hvað verður um þessar kindur.“ Halldór segir að eftirlit verði haft áfram með búfjárhaldi á Stórhóli. - jss
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Fleiri fréttir Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Sjá meira