Brot á umgengnisrétti verði refsiverð 12. febrúar 2010 06:45 Margir mættu á ráðstefnu um umgengnistálmanir og innrætingu eftir skilnað. Fréttablaðið/Stefán
Úrræði skortir fyrir foreldra sem fá ekki að umgangast börnin sín eins og umgengnisréttur kveður á um. Þetta er mat Maríu Júlíu Rúnarsdóttur lögfræðings sem kynnti meistararitgerð sína um foreldrafirringu á ráðstefnu um umgengnistálmanir og innrætingu eftir skilnað sem haldin var í vikunni. Foreldrafirring er hugtak sem á meðal annars við um það þegar foreldri með forsjá eða lögheimili barns kemur í veg fyrir umgengni hins foreldris við barn sitt. Einnig á hugtakið við það þegar foreldri talar illa um hitt foreldrið við barn sitt. María benti á að málsmeðferð í umgengnismálum taki oft langan tíma og þó að úrskurðað sé á þann veg að barnið eigi að umgangast foreldrið sem það býr ekki hjá þá sé lítið hægt að gera ef hitt foreldrið hlítir ekki úrskurðinum. María segir sjálfsagt að skoða nýjar leiðir til að tryggja umgengnisrétt, til dæmis að gera brot á honum refsiverð eins og þekkist meðal annars í Frakklandi. Sú leið hafi fælingarmátt sem virki betur á þá sem brjóti gegn umgengnisrétti en þvingunarúrræði á borð við dagsektir. Undir þessi sjónarmið tekur Stefanía Katrín Karlsdóttir stjórnmálafræðingur sem ásamt Maríu tók viðtöl við fjöldann allan af fólki sem vinnur í störfum sem koma að skilnaðarmálum á einn eða annan hátt. Stefanía kynnti í sinni framsögu hvernig stuðnings- og réttarkerfi tekur á deilum foreldra eftir að hafa kannað það ítarlega. Í stuttu máli komst hún að þeirri niðurstöðu að beita þurfi sáttamiðlun þegar skilnaðarmál berast stuðnings- og réttarkerfinu, þar sem foreldrum væri veitt ítarleg ráðgjöf um réttindi barna til foreldra og skyldur foreldra. Hún bendir á að deilur á milli fyrrverandi maka eigi til að stigmagnast og þó að þær snúist ekki um börnin í upphafi þá geri þær það oft er fram líði stundir. Mat þeirra sem best þekkja til sé að ef að sáttamiðlun væri beitt strax í upphafi yrðu deilur um forræði og umgengni færri og jafnvel mildari. Stefanía segir einnig stóran galla á núverandi kerfi að málsmeðferðartími er ótakmarkaður og mál geta velkst á milli embætta lengi. Einnig sé ábyrgð embætta óljós. Stefanía segir að þessa galla þurfi að laga, takmarka málsmeðferðartíma og skilgreina ábyrgð betur. Börnin líði fyrir óskilvirkt kerfi, því langvinnar deilur hafi slæm áhrif á þau. sigridur@frettabladid.is
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Sjá meira