Innlent

Staða Icesave-viðræðna skýr í lok næstu viku

Frá fundinum í morgun.
Frá fundinum í morgun.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að það sé óeðlilegt að þeir sem sæti rannsókn sérstaks saksóknara fái fyrirgreiðslur og afskriftir áður en niðurstaða fæst í rannsókn viðkomandi mála. Þá sagði hún einnig á fundinum að Icesave-málið ætti að vera orðið skýrt í lok næstu viku.

Hún segir jafnframt að sömu menn eigi að sjá sómann sinn í því að víkja til hliðar á meðan rannsókn stendur yfir og hafa engin afskipti af viðskiptalífinu á meðan.

Þá segir hún ennfremur að það sé ótækt að sjá sömu menn fá ofurlaun og annað sem þeir fái í gegnum samninga.

Þessi orð lét hún falla á blaðmannafundi eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Þar var einnig tilkynnt um átak ríkisstjórnarinnar til atvinnu- og nýsköpunar. Meðal annars kom fram að Byggðastofnun fengi 3,6 milljarða auk þess sem rúmlega hálfum milljarð verður veitt í uppbyggingu vinsælla ferðamannastaða á Íslandi.

Jóhanna sagði einnig að fundarhöld með Bretum og Hollendingum vegna Icesave séu fyrirhuguðu eftir helgina. Hún telur að það verði orðið ljóst í lok næstu viku hvort nýir samningar nást eða ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×