Lítrinn lækkar ekki í bráð 15. mars 2010 04:00
Olíufélögin hafa hækkað lítraverð á bensíni um um það bil 20 krónur frá áramótum. Eftir fjögurra króna hækkun á eldsneytisverði á miðvikudag er algengt sjálfsafgreiðsluverð á bensínlítranum 208,2 krónur en dísillítrinn kostar víða 202,9 krónur. Eldsneytisverð hefur hækkað reglulega frá áramótum, þegar algengt sjálfsafgreiðsluverð á bensíni var 188,2 krónur og dísilolían kostaði 186,9 krónur. Hækkunin kemur þrátt fyrir að gengi krónunnar hafi styrkst nokkuð undanfarið. Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá N1, segir skýringuna á hækkandi eldsneytisverði mikla hækkun á heimsmarkaðsverði undanfarið. Á síðustu tæpu tveimur vikum hafi heimsmarkaðsverð á bensíni hækkað um átta prósent. Lítilsháttar lækkun nýverið hafi gengið margfalt til baka strax næsta dag. Spurður hvort búast megi við lækkandi eldsneytisverði á næstunni sagðist Magnús svartsýnn á að það verði þróunin. „Ég myndi kannski ekki spá rosalegum hækkunum á næstunni, en ég er ekki bjartsýnn á að við sjáum lækkanir á næstu vikum," segir Magnús. Hann segir undirliggjandi þrýsting hafa verið á hækkun undanfarið, en ákveðið hafi verið að bíða í lengstu lög með hækkanir í þeirri von að heimsmarkaðsverð lækkaði á ný. Verri birgðastaða í Bandaríkjunum hefur leitt af sér hækkun á heimsmarkaðsverði á eldsneyti. Þá hefur heimskreppan einnig áhrif, enda halda þeir sem eiga peninga áfram að fjárfesta í hrávörum á borð við eldsneyti og gull í staðinn fyrir að fjárfesta í hlutabréfum. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Erlent Fleiri fréttir Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Sjá meira