Innlent

Heimildarmaður njóti nafnleyndar fyrir rétti

Björgólfur Guðmundsson
Björgólfur Guðmundsson

Lögmaður fréttastjóra og fréttamanns Stöðvar 2 hefur farið fram á það að heimildarmaður fréttastofunnar fái að gefa skýrslu einslega fyrir dómara í meiðyrðamálum nokkurra útrásarvíkinga gegn starfsmönnum fréttastofunnar. Eftir því sem næst verður komist á krafan sér ekkert fordæmi á Íslandi.

Magnús Þorsteinsson, Karl Wernersson og feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson hafa allir stefnt starfsmönnum fréttastofunnar fyrir meiðyrði vegna fréttar af meintum fjármagnsflutningi þeirra úr Straumi á erlenda bankareikninga um það leyti sem bankarnir féllu. Þeir krefjast allir einnar milljónar í skaðabætur. Stefna þeir ýmist Óskari Hrafni Þorvaldssyni fréttastjóra, Gunnar Erni Jónssyni fréttamanni, Telmu Tómasson fréttaþul eða þeim í sameiningu.

Tekist var á um kröfuna í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, en í grunninn snýst hún um að heimildarmaðurinn fái að mæta og gefa skýrslu einn fyrir dómara og votti, án þess þó að lögmenn viðskiptajöfranna fái að vita hver hann er eða að persónugreinanlegar upplýsingar birtist í dómskjalinu.

Daníel Isebarn Ágústsson flutti málin fyrir starfsmenn fréttastofunnar, og benti á að stefndu hefðu óumdeildan rétt samkvæmt lögum til að halda uppi vörnum í málinu eftir öllum tiltækum leiðum, en bæri að sama skapi að halda hlífiskildi yfir heimildarmönnum sínum. Meira að segja væri kveðið á um það í lögum að vitni í dómsmáli væri óheimilt að gefa upp nöfn heimildarmanna sinna.

Sagði Daníel að dómurinn þyrfti að finna leið til að samræma þetta tvennt, og besta leiðin til þess væri sú sem stungið væri upp á í kröfunni. Heimildarmaðurinn í þessu tilviki væri í viðkvæmri stöðu, og kynni að hafa brotið þagnarskyldureglur, til dæmis bankaleynd, með því að veita fréttastofunni upplýsingar. Engu máli skipti þótt ekki væri bein stoð fyrir því í lögum að fara svona að því ekkert bannaði það beinlínis heldur.

Lögmenn útrásarvíkinganna mótmæltu kröfunni. Þórunn Guðmundsdóttir, lögmaður Björgólfsfeðga, sagði lagaákvæðin sem Daníel vísaði til ekki eiga við í þessu tilviki. Lögmenn stefndu ættu rétt á að vera viðstaddir skýrslutökur af vitnum og engin rök væru fyrir því að fallast á „einhvern einkafund með dómara“. Sagði hún sönnunarbyrðina hvíla á stefndu, og að þegar hefðu komið fram gögn í málinu frá Straumi Burðarás og þrotabúi Samsonar, sem sýndu að fréttaflutningurinn hefði verið rangur.

stigur@frettabladid.is

Björgólfur Thor Björg­ólfsson
Magnús Þorsteinsson


Karl Wernersson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×