Samkeppniseftirlitið leitar hjá Íslandspósti 29. janúar 2010 05:30 Póstur Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að fylgst hafi verið með póstmarkaði í nokkurn tíma.Fréttablaðið/Arnþór
Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins gerðu húsleit í höfuðstöðvum Íslandspósts á miðvikudagsmorgun vegna gruns um brot á samkeppnislögum. „Þetta er liður í rannsókn sem beinist að meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Hann vill ekki upplýsa í hverju meint misnotkun Íslandspósts á að hafa falist, en tekur fram að rannsóknin beinist að fleiri en einu atriði. Samkeppniseftirlitið hafi verið að fylgjast með þessum markaði í nokkurn tíma. Húsleitin gekk vel og lagt var hald á bæði tölvugögn og pappíra, segir Páll Gunnar. Hann vildi ekki segja til um hvenær niðurstöður úr rannsókn Samkeppniseftirlitsins væru væntanlegar. „Við teljum að þeir séu að misnota markaðsráðandi stöðu sína í tilboðum í skjóli þess að þeir eru með einkarétt á bréfum upp að 50 grömmum. Við teljum að þeir séu að nýta það kerfi til að niðurgreiða samkeppnisflutning,“ segir Hannes Hannesson, framkvæmdastjóri Pósthússins. Hann segir Pósthúsið hafa sent nokkrar ábendingar til Samkeppniseftirlitsins vegna atriða sem talið sé að varði við samkeppnislög. Meðal þess sem kvartað var yfir er túlkun Íslandspósts á samningum um magnflutninga, segir Hannes. „Þeir vildu meina að það sem við værum að senda félli ekki innan þess samnings, og yfir því kvörtuðum við til Samkeppniseftirlitsins þar sem við töldum að þeir væru að mismuna okkur,“ segir Hannes. Íslandspóstur er meðal annars með einkarétt á dreifingu á bréfum undir 50 grömmum. Íslandspóstur keppir við Pósthúsið, sem dreifir meðal annars Fréttablaðinu, og Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, á öðrum sviðum. Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins komu í höfuðstöðvar Íslandspósts við opnun á miðvikudagsmorgun, og voru þar við leit fram að hádegi, segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts. „Þeir fengu gögn hjá okkur, en ég veit ekki hversu víðtæk leit þeirra var,“ segir Ingimundur. Hann segist aðspurður ekki telja að fyrirtækið hafi gerst brotlegt við samkeppnislög. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Sjá meira