Innlent

Fólk í bráðri hættu við nýja gossprungu

MYND/Óskar Friðriksson

Hópur fólks var í bráðri lífshættu þegar ný sprunga opnaðist á gossvæðinu á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi.

Þyrluflugmaður sem varð vitni að því þegar sprungan opnaðist segir hóp fólks hafa verið í 30 til 40 metra fjarlægð frá sprungunni. Einhverjir úr hópnum hafi ákveðið að ganga nær sprungunni í stað þess að forða sér.

„Fólk virtist ekki átta sig á því sem var að gerast," segir Gísli Gíslason, þyrluflugmaður hjá Norðurflugi.

„Við sáum fyrstu spýjuna koma upp úr storknuðu hrauni klukkan 18.52," segir Gísli. Það hafi verið afar tilkomumikil sjón að sjá hraunið klofna og eldinn rísa upp úr sprungunni.

Hann var þá nýlentur á hól skammt frá þar sem sprungan opnaðist. Hann segir að fljótlega eftir það hafi hann ákveðið að fljúga burt með sinn hóp, enda sprungan tekin að lengjast.

Þyrlur voru notaðar til að ferja fólk sem var á göngu nærri sprungunni að Hótel Skógum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á svæðið og fékk liðsauka frá tveimur þyrlum sem notaðar höfðu verið fyrir útsýnisflug.

Veginum inn í Þórsmörk var lokað fljótlega eftir að nýja sprungan myndaðist. Á tíunda tímanum í gær var fólki sem vildi komast burtu úr Þórsmörk leyft að fara yfir Hvanná í hópum með aðstoð björgunarsveitarmanna.

Nýi gígurinn virðist jafn kröftugur og sá fyrri, segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands.

Hann segir gosrásina sem liggur að fyrri gígnum væntanlega hafa klofnað á litlu dýpi norðvestan við fyrri gíginn.

Óli Þór Hilmarsson, fararstjóri hjá Útivist, var á göngu með tíu manna hóp þegar gossprungan opnaðist. Hann tók í kjölfarið að sér að koma fólki sem var í nágrenninu á eigin vegum niður í Bása á Goðalandi.

„Það gekk mjög vel að koma fólkinu niður enda gott veður og gott göngufæri," segir Óli.

Einhverjir ætluðu að gista í skálanum í Básum í nótt.

- bj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×