Hraunið myndar skeifu um skjöldinn 31. mars 2010 18:30
Minningarskjöldurinn um ungmennin þrjú, sem fórust á Fimmvörðuhálsi fyrir fjörutíu árum, er enn óskemmdur á sínum stað, rétt við rætur nýja eldfjallsins. Tvær hrauntungur hafa myndað skeifu utan um skjöldinn, en vari gosið lengi gæti minningarreiturinn lent undir hrauni.Systkini Dagmarar Kristvinsdóttur, íslensku stúlkunnar sem lést, settu upp skjöldinn fyrir sjö árum til minningar um systur sína og hin tvö sem urðu þarna úti á hvítasunnu vorið 1970, þau Elisabetu Brimnes frá Færeyjum og Ivar Stampe frá Danmörku.Stúlkurnar létust á þeim stað þar sem eldgosið kom upp, að því er fram kom í viðtali við bróður Dagmarar, Ómar Kristvinsson, um síðustu helgi, en fjölskyldan var þá að kanna hvort skjöldurinn væri kominn undir hraun. Þau hafa nú fengið staðfestingu á því, með þessari ljósmynd Ásu Ögmundsdóttur, að skjöldurinn hefur enn sem komið er sloppið. Hrauntungurnar frá gígnum eru þó farnar að þrengja að honum og mynda núna skeifu utan um staðinn.Eina færa leiðin að skildinum er núna um hinn hrikalega Heljarkamb en beggja vegna hans blasir við hengflug ofan í gilin tvö sem hraunið fossar niður í. Skjöldurinn er um 200 metra frá hraunjaðrinum og uppi í hæð, sem hefur til þessa varið hann gegn hraunrennslinu, en ef gosið verður langvarandi og hraunstaflinn hækkar, gæti skjöldurinn orðið jarðeldinum að bráð. Nánar verður fjallað um slysið hörmulega í Ísland í dag hér á eftir.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Fleiri fréttir Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Sjá meira