Innlent

Bjóða fram aðstoð við að flytja erlenda ríkisborgara frá Haíti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Íslenska björgunarsveitin undirbýr förina út. Mynd/ Valgarður.
Íslenska björgunarsveitin undirbýr förina út. Mynd/ Valgarður.
Utanríkisráðuneytið hefur boðið fram aðstoð við að flytja erlenda ríkisborgara frá Haítí með flugvélinni sem flytur íslensku alþjóðabjörgunarsveitina til hamfarasvæðanna þar.

Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að nú þegar hafi stjórnvöld í Bandaríkjunum, Svíþjóð og Danmörku þegið boðið, en frestur til að tilkynna um farþega rennur út klukkan níu í kvöld.

Íslensk stjórnvöld tóku á leigu farþegaflugvél frá Icelandair til að flytja 37 björgunarsveitarmenn og búnað til Haítí. Hafa stjórnvöld boðið sæti í vélinni á heimleið til allra ríkja sem sendiráð eiga á Íslandi og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandisns.

Millilent verður í Nassau á Bahama-eyjum til að taka eldsneyti áður en flogið verður til Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×