Formaður fjárlaganefndar ánægður með rekstrarafgang Landspítlans 20. ágúst 2010 21:59 Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, er formaður fjárlaganefndar Alþingis. Mynd/GVA
Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, er ánægður með rekstrarafgang Landspítlans sem var jákvæður um tæpar 36 milljónir króna á fyrri hluta þessa árs. Hann segir afar mikilvægt að stofnanir haldi sig innan fjárheimilda. Þá segir Guðbjartur starfsfólks Landspítlans eiga hrós skilið. Í byrjun árs var Landspítalanum gert að lækka rekstrarkostnaðinn um rúm 9% eða 3400 milljónir króna. Með umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem gripið var til á öllum sviðum spítalans um áramót hefur tekist að ná þessu markmiði. Undanfarin ár hefur verið langvarandi halli á rekstri spítalans. Guðbjartur segir að í kjölfar bankahrunsins hafi verið lögð mikil áhersla á að stofnanir héldu sig innan fjárheimilda og treystu ekki á fjáraukalög líkt og hafi tíðkast á árunum fyrir hrun. „Það var regla að bæði heilsgæslan og Landspítalinn fengu fjárveitingar eftir á. Þess vegna er það sérstakt fagnaðarefni að þeir hafi náð tökum á rekstrinum," segir Guðbjartur.Segir starfsfólkið hafa staðið þétt saman Guðbjartur segir mikilvægt að opinberar stofnanir haldi sig innan fjárheimilda. „Við höfum reynt að fylgjast mjög vel með og veita mönnum aðhald. Þetta krefur okkur auðvitað um að gera góðar áætlanir þannig að hægt sé að veita þá þjónustu sem ætlast er til. Því þurfa vandaðar fjárveitingar og skýlaus krafa um að menn standi fjárlög að fara saman." Þá segir Guðbjartur mikilvægt að hrósa starfsfólki Landspítlans. „Ég tek undir með Birni Zoëga. Starfsfólkið hefur greinilega lagt sig mjög vel fram og staðið þétt saman um að finna lausnir. Það er til fyrirmyndar."
Tengdar fréttir Rekstur Landspítalans jákvæður Rekstrarafgangur Landspítala á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 nam rúmum 35 milljónum króna, samkvæmt hálfsársuppgjöri sem Ríkisendurskoðun hefur staðfest. Í byrjun ársins var spítalanum gert að lækka rekstrarkostnaðinn um rúm 9% eða 3400 milljónir króna. Með umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem gripið var til á öllum sviðum spítalans um áramót hefur tekist að ná þessu markmiði, að því er fram kemur í tilkynningu frá spítlanum. 20. ágúst 2010 18:28 Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fleiri fréttir „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Sjá meira
Rekstur Landspítalans jákvæður Rekstrarafgangur Landspítala á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 nam rúmum 35 milljónum króna, samkvæmt hálfsársuppgjöri sem Ríkisendurskoðun hefur staðfest. Í byrjun ársins var spítalanum gert að lækka rekstrarkostnaðinn um rúm 9% eða 3400 milljónir króna. Með umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem gripið var til á öllum sviðum spítalans um áramót hefur tekist að ná þessu markmiði, að því er fram kemur í tilkynningu frá spítlanum. 20. ágúst 2010 18:28