Innlent

Þingflokkur VG fundar enn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir þykir hafa storkað VG með ummælum sínum í gær.
Jóhanna Sigurðardóttir þykir hafa storkað VG með ummælum sínum í gær.
Fundur þingflokks Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs stendur enn yfir. Hann hófst klukkan tvö í dag.

Þingflokksfundir eru haldnir reglulega, en gert var ráð fyrir að á þessum fundi yrði farið yfir ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær.

Efnislega sagði hún að það væri eins og að smala köttum að ná saman meirihluta á Alþingi að baki ríkisstjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×