Innlent

Fjallað um hreinlæti og sótthreinsum í HÍ

MYND/Vilhelm

Elizabeth Scott, dósent við Simmons College í Boston, Massachusetts, flytur í dag fyrirlestur um stefnur og strauma á sviði hreinlætis og sótthreinsunar á heimilum í Háskóla Íslands klukkan tólf.

Fyrirlesturinn verður haldinn í sal HT-105 á Háskólatorgi og fundarstjóri verður Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.

„Með tilkomu sýklalyfja og samfélagsbreytinga á síðari hluta 20. aldar dró úr áherslu utan heilbrigðisstofnana á hreinlæti og sýkingarvarnir. Áhugi á hreinlæti og sóttvörnum hefur hins vegar farið vaxandi að undanförnu, m.a. vegna erfiðra tilfella matareitrunar, tilkomu nýrra smitandi efna, vaxandi sýklalyfjaónæmis og skertrar starfsemi ónæmiskerfisins hjá sumum einstaklingum," segir í tilkynningu frá skólanum.

Scott mun fjalla um nokkrar ástæður þess að endurvekja markvissa hreinlætisstefnu og sjónum beint að rannsóknum í Simmons College á þessu sviði. Hún lauk doktorsprófi frá lyfjafræðideild King´s College, University of London, á sviði örverufræði.

„Hún er nú dósent við Simmons College í Boston, Massachusetts og veitir forstöðu nýrri stofnun um hreinlæti á heimilum og í umhverfinu (Center for Hygiene and Health in Home and Community Settings). Auk kennslu og rannsókna á sviði sóttvarna og matvælaöryggis hefur Dr. Scott starfað sem ráðgjafi fyrir alþjóðleg fyrirtæki sem framleiða matvæli, hreinlætis- og sóttvarnarefni, m.a. Proctor & Gamble, Levers, Dial og Georgia Pacific," segir ennfremur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×