Innlent

Hætt við að rukka fyrir garðaúrgang

SORPA hefur ákveðið að fresta áður ákveðinni gjaldtöku á garðaúrgangi. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi félagsins í dag.

„Stjórn SORPU bs. samþykkir að fresta gjaldtöku á garðaúrgangi á þessu ári. Stjórn leiti leiða til lækkunar kostnaðar við rekstur endurvinnslustöðvanna enda hefur rekstraráætlun 2010 verið samþykkt og kynnt eigendum SORPU bs. Jafnframt verði íbúum höfuðborgarsvæðisins kynntar aðferðir til að draga úr umfangi garðaúrgangs," segir í tilkynningu.

Þá segir að SORPU sé annt um að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins sem besta þjónustu og því verður leitað annarra leiða til að lækka kostnað við rekstur endurvinnslustöðvanna, en áætlaðar tekjur endurvinnslustöðvanna vegna móttöku garðaúrgangs var 28 milljónir 2010.

„SORPA biður garðaeigendur um að aðstoða við að draga sem mest úr umfangi garðaúrgangs en það má gera með ýmsum leiðum, s.s. rúmmálsminnka greinar með því að búnta þær saman eða kurla, koma sér upp heimajarðgerð og framleiða á þann hátt sína eigin moltu, sjá nánar á heimasíðu SORPU, sorpa.is. Á þennan hátt geta íbúar og stjórn SORPU sameinast um að draga úr rekstrarkostnaði stöðvanna."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×