Íslendingar viðurkenndu Icesave skuldbindingar í desember 2008 Heimir Már Pétursson skrifar 10. febrúar 2010 18:18
Í drögum að lánasamningum íslenskra stjórnvalda við Breta og Hollendinga frá því 37 dögum áður en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sprakk, má skilja að Íslendingar hafi gengist við lágmarksskuldbindingum vegna Icesave og óskað eftir lánum frá Bretum og Hollendingum fyrir þessum skuldbindingum. Fyrrverandi utanríkisráðherra kannast ekki við að hafa séð þessi drög. Fréttastofa hefur undir höndum drög að lánasamningum Íslands við Breta og Hollendinga frá 19. desember 2008, eða 38 dögum áður en ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sprakk, þar sem Íslendingar viðurkenna lágmarks skuldbindingar vegna Icesave og biðja Breta og Hollendinga að lána sér fyrir þeim, á verri kjörum en núgildandi Icesave lög gera ráð fyrir. Í drögunum er vísað til sameiginlegar yfirlýsingar þessara aðila frá 11. október 2008, þar sem gert er ráð fyrir 6,7 prósent föstum vöxtum á láni til tíu ára, með engum afborgunum á höfuðstól fyrstu þrjú árin. Hins vegar verði greiddir vextir frá upphafi lánstíma sem hefði þýtt samkvæmt upplýsingum fjármálaráðuneytisins að Íslendingar hefðu þurft að greiða 40 milljarða í vexti í apríl næst komandi. Þá voru engin uppsagnarákvæði í þessum samningsdrögum. Í núgildandi Icesave lögum er gert ráð fyrir fimm árum lengri lánstíma, 1,15 prósentustiga lægri vöxtum og engum kvöðum um afborganir hvorki á vöxtum né höfuðstól fyrstu sjö árin. Þá er hægt að segja upp núgildandi samningum, ef Íslendingar næðu t.d. betri lánakjörum annars staðar. Samningsdrögin frá 19. desember sem fréttastofan hefur nú afrit af, höfðu gengið milli samningsaðila að minnsta kosti í þrígang og tekið breytingum. Meðal annars var bætt í þá ákvæði þar sem Íslendingar óska eftir lánum frá Hollendingum og Bretum fyrir skuldbindingunni sem Íslendingar hafa þá fallist á. Ekki náðist í Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra vegna þessa máls, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra segir að hún hafi aldrei séð þessi drög sem um ræðir og hvorki þau né innihald þeirra hafi verið rædd á ríkisstjórnarfundum né milli hennar og þáverandi forsætisráðherra. Í ítarlegri grein í Fréttablaðinu í dag segir Indriði H. Þorláksson aðstoðarmaður fjármálaráðherra og samninganefndarmaður í síðari samningnum undir forsæti Svavars Gestssonar, að gögn sýni að samningaferlið hafi haldið áfram allt til endaloka ríkisstjórnar Geirs, í þríhliða viðræðum við Breta og Hollendinga. Ingibjörg Sólrún segir að ríkisstjórnin hafi aldrei fallist á fyrrgreind lánakjör og hafi talið að málið hafi núllstillst með Brussel viðmiðunum svo kölluðu og pólitískar viðræður hafi farið fram samhliða viðræðum embættismanna, um aðkomu Evrópusambandsins að málinu og lausn deilunnar um lánakjör. Pólitísk niðurstaða hafi því langt í frá verið kominn í málið.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Sjá meira