Erlent

Kjærsgaard vill banna innflytjendur í Danmörku

Pia Kjærsgaard formaður Danska þjóðarflokksins vill að stjórnvöld banni innflytjendum sem ekki eru af vestrænum uppruna að setjast að í Danmörku.

Þessi yfirlýsing hennar hefur vakið mikla athygli í Danmörku en Kjærsgaard er þekkt fyrir að hafa horn í síðu innflytjenda í landinu, einkum múslima.

Ekstra Bladet efndi til skoðanakönnunnar um málið meðal lesenda sinna og í ljós kom að 70% þeirra eru sammála afstöðu Kjærsgaard en alls tóku 12.400 manns þátt í könnunini.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×