Erlent

Forseti Pakistan í opinberri heimsókn í Bretlandi

Zardari forseti Pakistan er kominn í opinbera heimsókn til Bretlands þar sem hann mun eiga viðræður við David Cameron forsætisráðherra Breta.

Markmið viðræðna þeirra er að draga úr þeirri spennu sem nú ríkir í samskiptum landanna. Spennu sem myndaðist í kjölfar yfirlýsinga Cameron um að Pakistanir styddu við bakið á hryðjuverkamönnum.

Önnur mál sem rædd verða eru samvinna um aðgerðir gegn hryðjuverkum, barátta NATO í Afganistan og viðskiptamál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×