Erlent

Gerist teiknimyndahetja

Ali Imron Leiddur til réttar árið 2003.
nordicphotos/AFP
Ali Imron Leiddur til réttar árið 2003. nordicphotos/AFP
Ali Imron, ungur múslimi sem tók þátt í að skipuleggja sprengjuárás á eyjunni Balí árið 2002, sem kostaði 202 menn lífið, er aðalhetja teiknimyndasögu sem dreift verður í skóla og bókasöfn um alla Indónesíu.

Teiknimyndahetjan Imron útskýrir hvernig ungt fólk getur forðast að ánetjast hryðjuverkasamtökum og öfgahugmyndum. Aðrar helstu persónur sögunnar eru Bamberg Agus Priyanto, múslimi sem hjálpaði til við að bjarga fólki úr rústunum, og Eka Hayati, eiginkona eins hinna látnu. Imron iðraðist fljótlega gerða sinna og sýndi samvinnu við rannsókn málsins. Hann afplánar nú ævilangt fangelsi.- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×