Óskað eftir vitnum að slysi í Kópavogi 11. október 2010 16:41
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut í Kópavogi, sunnan Smáralindar síðastliðinn fimmtudag. Slysið varð á milli kl. 14 og 14.30 þegar rauðri bifreið, trúlega af gerðinni Nissan Sunny, var ekið í veg fyrir svart bifhjól af gerðinni Kawasaki NNJA á fyrrnefndum stað en ökutækin voru á norðurleið. Bifreiðin sem er að öllum líkindum komin vel til ára sinna, árgerð 95 eða eldri, var ekið fyrirvaralaust af vinstri akrein yfir á þá hægri með þeim afleiðingum að ökumaður bifhjólsins neyddist til að stýra hjólinu inn á vegöxl til að forðast árekstur. Það tókst en í framhaldinu missti bifhjólmaðurinn hinsvegar jafnvægið, á móts við aðrein að veitingastaðnum KFC, og hjólið féll í götuna. Maðurinn dróst með því einhvern spöl en hann var bæði bólginn og marinn eftir byltuna og er óvinnufær þessa dagana. Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Sérstaklega er þess óskað að ökumaður grænnar Nissan Almera bifreiðar gefi sig fram en sá gaf sig á tal við bifhjólamanninn á vettvangi, strax eftir slysið.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira