Bein Jóhannesar skírara í klausturrústum Óli Tynes skrifar 5. ágúst 2010 14:34 Málaverk af Jóhannesi skírara eftir Leonardo da Vinci.
Bein af Jóhannesar skírara eru fundin í rústunum af fornu munkaklaustri í Búlgaríu að sögn þarlendra yfirvalda. Lítil steinkista með beinunum var opnuð þar við hátíðlega athöfn að viðstöddum biskupum, prestum og ráðherrum. Klausturrústirnar eru frá fimmtu öld. Þær eru á eynni Sveti Ivan á Svartahafi. Í kistunni var brot úr höfuðkúpu, bein úr kjálka og handlegg og ein tönn. Fornleifafræðingar röktu slóðina Í grískri áletrun á steinkistunni var tilvísun til 24. júní en talið er að það sé fæðingardagur Jóhannesar. Það voru fornleifafræðingar sem röktu slóðina að kistunni sem var felld inn í altari klaustursins. Bozhidar Dimitrov er ráðherra án ráðuneytis í ríkisstjórn Búlgaríu. Hann var áður framkvæmdastjóri þjóðminjasafns Búlgaríu. Dimitrov sagði að kistan hefði fundist nákvæmlega þar sem fornleifafræðingarnir sögðu til um. Ekki er nákvæmlega vitað hvernig beinin enduðu á eynni. Ráðherrann sagði að hugsanlega hafi þau verið gjöf frá kristnu kirkjunni í Konstantínópel meðan Búlgaría var hluti af Bysantiska keisaradæminu. Höfuðið borið fram á fati Eftir er að aldursgreina beinin. Sérstaklega er mikilvægt að tönn skuli vera þar á meðal, því með greiningu á tönnum er hægt að segja til um með nokkurri nákvæmni hvar viðkomandi bjó í lifanda lífi. Jóhannes skírari er sérstaklega dýrkaður í austurlensku réttrúnaðarkirkjunni. Hann sagði fyrir um komu Krists áður en hann var hálshöggvinn að skipan Heródesar konungs. Höfuð hans var borið fyrir konunginn á fati.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira