Bera ábyrgð á mesta olíuleka sögunnar 5. ágúst 2010 06:00 Bæði yfirmenn BP og Bandaríkjastjórn hafa orðið fyrir harðri gagnrýni fyrir hægagang í glímunni við olíulekann.nordicphotos/AFP
Frá 23. apríl fram í ágústbyrjun láku nærri fimm milljónir tunna af olíu út í Mexíkóflóa. Í gær gáfu bandarísk stjórnvöld út þá tilkynningu að fjórðungur þeirrar olíu væri enn í hafinu, en 75 prósent hafi ýmist verið hreinsuð upp, brennd, gufað upp í andrúmsloftið eða brotnað niður í hafinu. Heildarmagn lekans er tuttugu sinnum meira en það sem lak út í hafið út af strönd Alaska þegar olíuskipið Exxon Valdez strandaði þar árið 1989. Enn er í hafinu fimmfalt það magn sem lak úr Exxon Valdez á sínum tíma. Það var ekki fyrr en nú í byrjun vikunnar sem breska olíufyrirtækið BP taldi sig hafa komist fyrir lekann að fullu. Tjónið er gríðarlegt, þótt vissulega hafi tekist að koma í veg fyrir að það yrði enn verra. Bæði yfirmenn olíufélagsins BP og Bandaríkjastjórn hafa orðið fyrir harðri gagnrýni fyrir hægagang og vandræðagang í glímunni við þennan mesta olíuleka sögunnar. Framan af var minna gert úr vandanum en efni stóðu til, auk þess sem sigri var oftar en einu sinni fagnað áður en ástæða var til. Enn er ekki útséð um hvort tekist hefur að stöðva lekann endanlega. Það verður ekki ljóst fyrr en eftir nokkrar vikur, þegar leðju verður dælt niður í olíubrunninn og síðan steypt yfir allt saman. Þá verður einnig lokið við að bora nýjan brunn niður í gömlu borholuna, svo hægt verði að ganga úr skugga um hvernig til hefur tekist. Engin leið er heldur til að segja hvenær lokið verður við að hreinsa olíuna úr hafinu eða hve miklu tjóni hún á eftir að valda meðan hún er þar enn á sveimi. „Enn eru bátar þarna úti á hverjum degi með fólk að störfum. Skjaldbökur finnast þaktar olíu og gras finnst á ströndinni með olíu,“ segir Randy Boggs, skipstjóri á ferju. Hann segist eiga erfitt með að trúa yfirlýsingum BP um að lekinn hafi verið stöðvaður. „Enn eru milljónir punda af tjörukleprum og olíu á hafsbotni.“ Lekinn hófst þegar olíuborpallurinn Deepwater Horizon sökk þann 23. apríl síðastliðinn. Þremur dögum fyrr hafði orðið sprenging í pallinum með þeim afleiðingum að ellefu starfsmenn létu lífið. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira