Fréttaskýring: Tveir andstæðir pólar í gengislánamáli 25. júní 2010 04:45 Óvíst er hvað tekur við af gengistryggðum bílalánum fjármögnunarfyrirtækjanna. Fréttablaðið/stefán
Tvær fylkingar takast á um næstu skref eftir að Hæstiréttur úrskurðaði ólögmæti gengistryggðra bílalána fyrir viku. Annar hópurinn segir vaxtatöflu Seðlabankans eiga að taka við af gengistryggingunni. Hinn krefst þess að upphaflegir samningsvextir standi. Menn greinir mjög á um hvað taki við í kjölfar úrskurðar Hæstaréttar frá í síðustu viku að gengistryggð bílalán Lýsingar og SP Fjármögnunar væru ólögmæt. Níu ár eru síðan slíkt var óheimilt án þess að nokkur eftirlitsaðili hafi gripið í taumana. Sama dag og úrskurðurinn féll lagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra það til í samtali við Fréttablaðið að í stað gengistryggingar skyldi miða við hagstæðustu vexti Seðlabankans, hvort heldur er verðtryggða eða óverðtryggða, í stað þeirra samningsvaxta sem kveðið sé á um í lánasamningum fjármögnunarfyrirtækjanna. Undir þetta hafa fleiri í stjórnsýslunni tekið, svo sem Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann og Már Guðmundsson seðlabankastjóri telja báðir að verði lendingin sú að miða við samningsvexti gengislána og afnema tryggingar sem fólust í genginu geti það sett bankakerfið á hliðina. Már dró upp svarta mynd af efnahagshorfum hér verði lendingin sú að miða við samningsvexti í stað einhvers forms verðtryggingar. Sú spá tók mið af víðtækustu skilgreiningu á gengislánum. Arion banki og Íslandsbanki sendu frá sér tilkynningar í gær, þar sem fram kemur að nái skilgreiningin á gengistryggðu lánunum jafnframt til íbúðalána muni það ekki leiða til þess að eiginfjárhlutföll bankanna fari undir þau sextán prósenta mörk sem Fjármálaeftirlitið setur þeim. Landsbankinn er veikastur bankanna með 16,3 prósenta eiginfjárhlutfall en Íslandsbanki sterkastur. Eiginfjárhlutfall hans er 19,8 prósent. Landsbankinn vísaði því ekki á bug opinberlega í gær að hann væri varinn gegn víðtækari úrskurði Hæstaréttar. Forsvarsmenn fjármögnunarfyrirtækjanna tveggja auk Avant og Íslandsbanka Fjármögnunar og bankanna þriggja hafa fundað sleitulítið frá því dómur Hæstaréttar féll. Þeir hafa frá upphafi sagt ekki liggja fyrir hvað muni taka við af gengistryggingunni. Hefur hópurinn kallað eftir tilmælum frá stjórnvöldum til að brúa bilið þar til Hæstiréttur dæmir í sambærilegum málum sem skorið geta bæði úr um það hvort skilgreining á gengistryggðum lánum nái til íbúðalána og hvað taki við af gengistryggingunni. Fjármögnunarfyrirtækin hafa sett greiðsluseðla í salt þar til skorið verður úr óvissunni. Heimildir Fréttablaðsins herma að bæði innan dyra fjármögnunarfyrirtækjanna og bankanna hafi verið settir fram útreikningar, sem fela í sér nokkra möguleika. Þeir sem rætt hefur verið við segja að þótt ríkisstjórnin hafi ekki sett fram opinber tilmæli um það við hvaða útreikninga eigi að miða kunni svo að fara að vaxtatafla Seðlabankans verði ofan á þar til Hæstiréttur sker úr um annað.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira