Innlent

Fimm mæðrastyrksnefndir á landinum öllu

Erla Hlynsdóttir skrifar
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir býst við enn fleiri fyrir þessi jólin en síðustu jól fengu á fimmta þúsund manns jólaaðstoð
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir býst við enn fleiri fyrir þessi jólin en síðustu jól fengu á fimmta þúsund manns jólaaðstoð Mynd: Hari
Mæðrastyrksnefndir eru starfandi á fimm stöðum á landinu. Sú elsta er í Reykjavík en auk hennar eru nefndir í Hafnarfirði, Kópavogi, Akureyri, auk Mæðrastyrksnefndar Vesturlands á Akranesi. Sú síðastnefndar er einnig sú nýjasta en eins og Vísir sagði frá í gær fengu um tíu prósent íbúa Akraness þar aðstoð fyrir síðustu jól.

Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, segir fjölda beiðna um aðstoð fyrir jólin berast frá Austurlandi en þar er engin nefnd starfandi. Íbúar þess landshluta, sem og annarra svæða þar sem engin er Mæðrastyrksnefndin, leita til presta og Rauða krossins sem síðan hefur milligöngu um matarúthlutun.

Stingur í hjartað um jólin

„Það stingur mig alltaf í hjartað að sjá hversu mörgum líður illa í kring um jólin. Margir eru gjafmildir og góðir en það eru allt og margir sem líður alveg hræðilega á þessum tíma," segir Ragnhildur. Gríðarleg krafa er á fólk og fjölskyldur að kaupa veglegar gjafir og bjóða upp á dýrindis mat um hátíðirnar og eykur þessi krafa gjarnan á vanlíðan þeirra sem hafa lítið á milli handanna. Þeir fara þá að bera sig saman við vini, kunningja og nágranna og upplifa sig sem þeim óæðri.



Enn fleiri í neyð þessi jólin


Fjöldi þeirra sem fá jólaaðstoð hjá mæðrastyrksnefnd eykst ár frá ári. Þannig reiknar Ragnhildur með því að fjöldinn nái sögulegu hámarki fyrir þessi jólin. Í fyrra fengu rúmlega fjögur þúsund jólaaðstoð en árið þar áður náði fjöldinn ekki fjórða þúsundinu. Hún telur ekki ólíklegt að fimm þúsund manns leiti sér aðstoðar fyrir jólin í ár.

Engin biðröð

Í viku hverri fá um sjö hundruð fjölskyldur mataraðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Þegar um vikulegar matarúthlutanir er að ræða mætir fólk og stendur í biðröð eftir matnum. Fyrir jólin er annar háttur hafður á.

Þá fyllir fólk út umsóknareyðyublað og fær einskonar aðgöngumiða með tíma og dagsetningu þar sem fólk getur þá komið og sótt sína jólaaðstoð án þess að standa í röð. Byrjað verður að taka við umsóknum í lok nóvember.

Þurfa að fara á mill bæjarfélaga

Sem fyrr verður Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða krossinn fyrir jólin.

Aðspurð segist Ragnhildur ekki geta lagt mat á þörfina fyrir Mæðrastyrksnefndir á fleiri stöðum á landinu en nú eru þegar þar sem hennar starfssvæði er í höfuðborginni.

Íbúar af Suðurlandinu og Reykjanesi sækja sína aðstoð til Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Kópavogs. Þeir þurfa sjálfir að mæta á staðinn þegar um vikulegar matarúthlutanir að ræða en fyrir jólin er matur og aðrar vörur sendar til bæjarfélaganna.


Tengdar fréttir

10% íbúa á Akranesi fengu jólaaðstoð í fyrra

Um 150 fjölskyldur fengu mataraðstoð frá Mæðrastyrksnefnd Vesturlands fyrir síðustu jól. Björk Gunnarsdóttir, formaður nefndarinnar, býst við að neyðin verði enn meiri fyrir þessi jól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×