Fimm mæðrastyrksnefndir á landinum öllu Erla Hlynsdóttir skrifar 22. október 2010 11:12 Ragnhildur G. Guðmundsdóttir býst við enn fleiri fyrir þessi jólin en síðustu jól fengu á fimmta þúsund manns jólaaðstoð Mynd: Hari
Mæðrastyrksnefndir eru starfandi á fimm stöðum á landinu. Sú elsta er í Reykjavík en auk hennar eru nefndir í Hafnarfirði, Kópavogi, Akureyri, auk Mæðrastyrksnefndar Vesturlands á Akranesi. Sú síðastnefndar er einnig sú nýjasta en eins og Vísir sagði frá í gær fengu um tíu prósent íbúa Akraness þar aðstoð fyrir síðustu jól. Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, segir fjölda beiðna um aðstoð fyrir jólin berast frá Austurlandi en þar er engin nefnd starfandi. Íbúar þess landshluta, sem og annarra svæða þar sem engin er Mæðrastyrksnefndin, leita til presta og Rauða krossins sem síðan hefur milligöngu um matarúthlutun.Stingur í hjartað um jólin „Það stingur mig alltaf í hjartað að sjá hversu mörgum líður illa í kring um jólin. Margir eru gjafmildir og góðir en það eru allt og margir sem líður alveg hræðilega á þessum tíma," segir Ragnhildur. Gríðarleg krafa er á fólk og fjölskyldur að kaupa veglegar gjafir og bjóða upp á dýrindis mat um hátíðirnar og eykur þessi krafa gjarnan á vanlíðan þeirra sem hafa lítið á milli handanna. Þeir fara þá að bera sig saman við vini, kunningja og nágranna og upplifa sig sem þeim óæðri. Enn fleiri í neyð þessi jólin Fjöldi þeirra sem fá jólaaðstoð hjá mæðrastyrksnefnd eykst ár frá ári. Þannig reiknar Ragnhildur með því að fjöldinn nái sögulegu hámarki fyrir þessi jólin. Í fyrra fengu rúmlega fjögur þúsund jólaaðstoð en árið þar áður náði fjöldinn ekki fjórða þúsundinu. Hún telur ekki ólíklegt að fimm þúsund manns leiti sér aðstoðar fyrir jólin í ár.Engin biðröð Í viku hverri fá um sjö hundruð fjölskyldur mataraðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Þegar um vikulegar matarúthlutanir er að ræða mætir fólk og stendur í biðröð eftir matnum. Fyrir jólin er annar háttur hafður á. Þá fyllir fólk út umsóknareyðyublað og fær einskonar aðgöngumiða með tíma og dagsetningu þar sem fólk getur þá komið og sótt sína jólaaðstoð án þess að standa í röð. Byrjað verður að taka við umsóknum í lok nóvember.Þurfa að fara á mill bæjarfélaga Sem fyrr verður Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða krossinn fyrir jólin. Aðspurð segist Ragnhildur ekki geta lagt mat á þörfina fyrir Mæðrastyrksnefndir á fleiri stöðum á landinu en nú eru þegar þar sem hennar starfssvæði er í höfuðborginni. Íbúar af Suðurlandinu og Reykjanesi sækja sína aðstoð til Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Kópavogs. Þeir þurfa sjálfir að mæta á staðinn þegar um vikulegar matarúthlutanir að ræða en fyrir jólin er matur og aðrar vörur sendar til bæjarfélaganna.
Tengdar fréttir 10% íbúa á Akranesi fengu jólaaðstoð í fyrra Um 150 fjölskyldur fengu mataraðstoð frá Mæðrastyrksnefnd Vesturlands fyrir síðustu jól. Björk Gunnarsdóttir, formaður nefndarinnar, býst við að neyðin verði enn meiri fyrir þessi jól. 21. október 2010 15:48 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira
10% íbúa á Akranesi fengu jólaaðstoð í fyrra Um 150 fjölskyldur fengu mataraðstoð frá Mæðrastyrksnefnd Vesturlands fyrir síðustu jól. Björk Gunnarsdóttir, formaður nefndarinnar, býst við að neyðin verði enn meiri fyrir þessi jól. 21. október 2010 15:48