Innlent

Þingmenn fara bakdyramegin inn í þinghúsið

Gríðarlegur fjöldi fólks safnaðist á Austurvelli í dag. Mynd/ Vilhelm.
Gríðarlegur fjöldi fólks safnaðist á Austurvelli í dag. Mynd/ Vilhelm.
Lögreglumenn á Austurvelli brýna það fyrir mótmælendum að halda sig innan þeirra marka sem þeim hefur verið sett. Geri þeir það ekki muni lögreglumenn beita piparúða.

Mótmælendur hrópa vanhæf ríkisstjórn á móti. Alþingismenn fóru til guðsþjónustu klukkan hálftvö og mun þingsetning hefjast klukkan tíu mínútur yfir tvö. Lögreglumenn eru með hlífðarskildi til að tryggja að mótmælendur haldi sér á sínum stað. Þingmenn fóru bakdyramegin inn í Alþingi til að forðast eggjakast frá mótmælendum. Engu að síður fékk Guðbjartur Hannesson egg í sig og Guðlaugur Þór Þórðarson hljóp inn í þinghúsið til að forðast eggjakastið.

Þingmennirnir Mörður Árnason. Skúli Helgason, Katrín Jakobsdóttir og Árni Þór Sigurðsson voru ekki í kirkjunni heldur á meðal mótmælenda.






Tengdar fréttir

Alþingi sett - bein útsending

Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö í dag. Bein útsending verður hér á Vísi. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og flestir alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu þegar klukkan er 25 mínútur gengin í tvö.

Rúða brotin í Dómkirkjunni - lögreglan með kylfur

Mótmælendur hafa brotið rúðu í Dómkirkjunni í Reykjavík. Alþingismenn komu saman til guðsþjónustu þar klukkan hálftvö eins og venja er þegar Alþingi er sett. Talið er að á bilinu 500 - 1000 manns séu samankomnir á Austurvelli til að mótmæla. Lögreglan er með kylfur á lofti og öllu viðbúnir.

Bein útsending frá Austurvelli

Á Vísi verður bein útsending frá Austurvelli í dag þegar Alþingi verður sett. Þingmenn ganga frá þinghúsinu og yfir í Dómkirkjuna í Reykjavík þar sem fram fer Guðsþjónusta. Síðan ganga þeir aftur frá kirkjunni og yfir í í Alþingishúsið þar sem Alþingi verður sett.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×