Eftirlitsnefndin aðhefst ekki vegna fjármála Kópavogsbæjar 23. desember 2010 15:34 Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, fagnar niðurstöðu eftirlitsnefndarinnar
Fram kemur í bréfi Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga til bæjarstjórnar Kópavogs, dagsettu 17. desember 2010, að hún muni ekki að svo stöddu aðhafast frekar vegna fjármála bæjarins. Samkvæmt fjárhagsáætlun Kópavogs fyrir árið 2011 á reksturinn að skila einum milljarði til lækkunar skulda á því ári og svo áfram næstu árin. Bæjarstjórnin hefur jafnframt sett sér það markmið að skuldir sem hlutfall af tekjum verði undir 200% árið 2014. Áætlað er að þetta hlutfall verði 248% vegna þessa árs og að það verði 214% á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, fagnar niðurstöðu nefndarinnar. „Stjórnendur bæjarins hafa sett sér skýr markmið og vandað til áætlanagerðar næstu þriggja ára. Það er afar brýnt að okkur takist að vinda ofan af miklum skuldum bæjarins sem mun létta reksturinn til lengri tíma. Það er ljóst að ekkert má út af bregða og við þurfum að halda stíft í taumana." Eftirlitsnefndin ritaði Kópavogsbæ bréf þann 31. ágúst síðastliðinn þar sem farið var fram á frekari upplýsingar vegna niðurstöðu ársreiknings fyrir árið 2009. Í bréfinu kom meðal annars fram að miklar skuldir kölluðu á frekari upplýsingaöflun og skoðun á fjármálum sveitarfélagsins. Kópavogsbær sendi nefndinni umbeðnar upplýsingar og fundaði með henni 23. nóvember þar sem farið var ítarlega yfir fjármálin. Þar var m.a. fjallað um mikilvægi þess að bærinn ynni markvisst að því að lækka skuldir á næstu árum og tekur nýsamþykkt fjárhagsáætlun mið af því. Eftirlitsnefndin ítrekar í lok bréfsins varnaðarorð til bæjarstjórnar Kópavogs um skuldastöðu bæjarins og segist áfram munu fylgjast með framvindu fjármála Kópavogsbæjar á næstu misserum.
Mest lesið Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags Innlent Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Innlent Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Innlent Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Fleiri fréttir Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu Sjá meira