Innlent

Varað við fölsuðu megrunarlyfi

Lyfja- og matvælastofnun Bandaríkjanna hefur sent frá sér viðvörun um að netverslanir hafi selt fölsuð megrunarlyfi sem heitir Alli. Lyfjastofnanir í Evrópu taka undir þessa viðvörun. Hylki með lyfjunum fékk markaðsleyfi á Íslandi í mars á síðasta ári en hafa ekki verið markaðssett, að fram kemur á vef Lyfjastofnunar.

Megrunarlyfið Alli hefur markaðsleyfi í Bandaríkjunum og á Evrópska efnahagssvæðinu. Lyfið er selt í Bandaríkjunum, á Bretlandi og víðar án lyfseðils.

Virka innihaldsefni megrunarlyfsins er orlístat en í fölsuðu útgáfunni er hins vegar að finna misstóra skammta af megrunarlyfinu síbútramín sem er virka efnið í lyfinu Reductil, að fram kemur á vef Lyfjastofnunar.

Rannsóknir Lyfja- og matvælastofnun Bandaríkjanna sýndu að allt að þrefaldur ráðlagður dagskammtur af síbútramíni gat verið í fölsuðu Alli hylkjunum sem jafngildir tvöföldum hámarks dagskammti.

Markaðsleyfi fyrir Reductil hér á landi var innkallað í síðustu viku vegna gruns um aukna hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.

Lyfjastofnun varar fólk við kaupum á lyfjum í netverslunum. Samkvæmt íslenskum lögum er netverslun með lyf óheimil enda án eftirlits heilbrigðisyfirvalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×