Urgur er í stjórnarliðum vegna E.C.A. 19. mars 2010 06:00 steinunn valdís óskarsdóttir „
Þetta er algjörlega forkastanlegt," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um hugmyndir um hernaðarfyrirtæki á Keflavíkurflugvelli. Samflokksmenn hennar, Björgvin G. Sigurðsson og Róbert Marshall, hafa lýst sig fylgjandi hugmyndinni. Björgvin sagði í samtali við Víkurfréttir á miðvikudag að málið hefði verið samþykkt í ríkisstjórn. Enginn ráðherra sem Fréttablaðið hafði samband við kannaðist við að málið hefði nokkru sinni ratað á borð stjórnarinnar. Umsókn fyrirtækisins er á borði Flugmálastjórnar og líkt og Fréttablaðið greindi frá í gær er mat hennar langt komið. Samkvæmt heimildum blaðsins er niðurstaða hennar sú að breyta þurfi reglugerð eigi málið að ná fram að ganga. Þá kemur til kasta samgönguráðherra. Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og þingmaður Vinstri grænna, leggst alfarið gegn hugmyndinni. „Ég tel að við höfum ekki þörf fyrir nýtt hermang hér á landi. Við börðumst nú mörg hver lengi fyrir því að herinn færi og það er ekki hægt að búast við að við stökkvum á þetta." Hann segir að þótt illa ári geti Íslendingar ekki stokkið á hvað sem er þótt fjármunir séu í boði. Steinunn Valdís segir málið aldrei hafa verið rætt í þingflokki Samfylkingarinnar. „Ef marka má heimasíðu þessa fyrirtækis er ekki annað að sjá en að meginmarkmið þess sé stríðsrekstur. Ísland á ekki að setja nafn sitt við svona starfsemi og þetta er algjörlega á skjön við þá ímynd sem við þurfum að byggja upp. Ég gef ekkert fyrir þau rök að þetta sé í nafni atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum. Við hljótum að setja einhver siðferðismörk um þá atvinnustarfsemi sem hér fer fram." Nokkur kurr var í stjórnarliðum sem Fréttablaðið ræddi við í gær. Vísuðu sumir á stjórnarsáttmálann, að þessi starfsemi rímaði illa við ákvæði hans um að ríkisstjórnin leggi áherslu á baráttu fyrir friði og afvopnun og að Ísland verði boðið fram sem vettvangur fyrir friðarumræður. kolbeinn@frettabladid.is bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Sjá meira