Innlent

Fundað í flugvirkjadeilu í dag

Flugvirkjar hjá Icelandair hafa verið boðaðir til samningafundar við vinnuveitendur hjá ríkissáttasemjara klukkan hálf ellefu, en ekkert mun hafa þokast í samkomulagsátt á sex klukkustunda löngum fundi deilenda í gær.

Flugvirkjar hafa boðað ótímabundið verkfall frá klukkan eitt, aðfararnótt mánudags og stöðvast þá allt flug Icelandair, ef ekki semst fyrir þann tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×