Stjórnvöld gefa út handbók um kynjaða fjárlagagerð 19. mars 2010 11:42 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Fjármálaráðuneytið hefur gefið út handbók undir yfirskriftinni „Kynjuð fjárlagagerð: handbók um framkvæmd" sem ætlað er að varpa ljósi á aðferðafræði kynjaðrar fjárlagagerðar og vera þeim sem að fjárlagagerðinni koma til halds og traust. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð rík áhersla á kynjajafnrétti og er kynjuð fjárlagagerð ein leið að því marki, að fram kemur í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Þar segir að handbókin hafi fyrst komið út á vegum Evrópuráðsins í fyrrasumar en höfundur bókarinnar er Sheila Quinn, sérfræðingur í jafnréttismálum, sem hefur komið að fjölmörgum verkefnum í kynjaðri fjárlagagerð á Bretlandi og víðar. „Í kynjaðri fjárlagagerð felst að kynjasamþættingu er beitt í öllu fjárlagaferlinu. Það þýðir að í fjárlagavinnunni fer fram mat á áhrifum fjárlaga á kynin og er markmiðið að endurskipuleggja bæði tekju- og gjaldahlið fjárlaga á grundvelli jafnréttissjónarmiða. Kynjuð fjárlagagerð snýst ekki um helmingaskipti milli kynjanna heldur um greiningu á þörfum og aðstæðum hverju sinni. Hún hefur þann kost að auka gagnsæi í ríkisfjármálum og gera það sýnilegra hvernig opinberu fé er varið í þágu þegnanna, jafnframt því að stuðla að betri markmiðssetningu," segir í tilkynningunni. Stefnt er að því að kynna fyrstu verkefni ríkisins í kynjaðri fjárlagagerð í fjárlögum ársins 2011. Hægt er að nálgast handbókina hér.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Sjá meira