Tökur hefjast á Hæ Gosa á Akureyri 9. júlí 2010 04:00 María Ellingsen og Árni Guðjónsson sjást hér sitja í litríku eldhúsi í fyrstu tökum sjónvarsþáttanna Hæ Gosi. „
Við erum komin hingað í norðlensku sæluna og tökur voru að hefjast. Má segja að allt sé á suðupunkti,“ segir Baldvin Z og bætir við að tökuliðið hafi fengið góðar móttökur hjá Akureyringum. Baldvin er einn af framleiðendum sjónvarpsþáttanna Hæ Gosi sem verða sýndir næsta haust á Skjá einum. Tökur voru að hefjast í vikunni og þegar Fréttablaðið náði tali af Baldvini var góð stemming í herbúðum þáttanna. „Ég eiginlega trúi varla að þetta sé að gerast. Þetta er eins og eitt skrítið ævintýri. Við erum búin að vera að vinna við þetta á fullu síðan í byrjun árs og nú er þetta loksins að fara í gang,“ segir Baldvin spenntur. Aron Pálmi Arnórsson er leikstjóri þáttanna en þeir eru skrifaðir af öllum fjórum aðstandendum Zeta Film í sameiningu og eru það bræðurnir Kjartan og Árni Guðjónssynir sem fara með aðalhlutverkin. Mikil keyrsla verður á tökuliðinu en áætlað er að taka upp sex þætti á einum mánuði. „Já, þetta er frekar knappur tími en það hafa stærri þrekvirki verið unnin á styttri tíma. Svo erum við með frábært tökulið með okkur, góða blöndu af reyndum og óreyndum.“ Tökur fara aðallega fram á Akureyri en einnig munu einhverjar upptökur fara fram í Eyjafirði og Hrísey. Með önnur hlutverk fara Þórhallur Sigurðsson, María Ellingsen, Helga Braga Jónsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson og Hannes Óli Ágústsson. „Við erum búin að koma okkur vel fyrir hér í höfuðstað Norðlendinga og þetta verður skemmtilegur mánuður,“ segir Baldvin. - áp
Mest lesið Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Lífið Fögnuðu aldarafmæli með pompi og prakt Lífið „Hún var að deyja lifandi fyrir framan augun á okkur“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Lífið Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Lífið Lítið kjöt á beinum rándýrsins Gagnrýni Jenner segist hafa veikst af Ozempic Lífið Ástarsorgin átakanleg en gjöful Tónlist Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Lífið „Enginn nema ég þekkir þessa Ragnhildi“ Áskorun Fleiri fréttir „Hún var að deyja lifandi fyrir framan augun á okkur“ Bakaríið í beinni á Vísi Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Oddvitaáskorunin: Maturinn þarf að vera fallegur og litríkur Fögnuðu aldarafmæli með pompi og prakt Jenner segist hafa veikst af Ozempic Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn Oddvitaáskorunin: Alæta á tónlist Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Reyndi við lúmskar Friends-spurningar Leiðir skilja ekki hjá Charlize Theron og Balta Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Ungir skáksnillingar á Laufásborg unnu til verðlauna á EM Oddvitaáskorunin: Fær ekki lengur að velja tónlistina á viðburðum Oddvitaáskorunin: Byrjar settið á tjáningardansi við Euphoria Látlausir kjólar hafa átt sviðið en það er að breytast Með eina þriggja mánaða í vinnunni Oddvitaáskorunin: Erfðagóssið færi frekar til versta óvinar „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Tapaði ellefu milljónum Oddvitaáskorunin: Á í haltu mér - slepptu mér sambandi með morgunmat Hvað veistu um… pasta? Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Sjá meira