Innlent

Hald lagt á dóp eftir húsleit í Hafnarfirði

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gærkvöld. Um var að ræða um 130 grömm af amfetamíni, á annan tug kannabisplantna og lítilræði af marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á allnokkuð af sterum.

Húsráðandi, karl um þrítugt, var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×