Innlent

Góð staða lífeyrissjóða ánægjuleg

Mynd tengist frétt ekki beint.
Mynd tengist frétt ekki beint.
Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir góða stöðu sjóðanna ánægjulega, en lágir vextir geti hins vegar ógnað stöðu lífeyrisþega.

Í skýrslu efnahags- og framfarastofnunarinnar um stöðu lífeyrissjóða aðildarríkjanna er sagt að fjárfestingatap þeirra frá hruni nemi alls andvirði um 432 þúsund milljarða króna, en það hafi aðeins skilað sér aftur að tæpum helmingi eftir að markaðir tóku við sér.

Stofnunin nefnir þó örfáar undantekningar, þar sem staða lífeyrissjóðanna var betri í lok árs 2009 en hún var 2007. Ein þeirra eru íslenskir lífeyrissjóðir, sem OECD segir að hafi náð sér fullkomlega eftir heimskreppuna. Þá kemur fram að óvíða séu lífeyrissjóðir betur fjármagnaðir en hér á landi, þar sem eignir þeirra nema einna landsframleiðslu og fimmtungi betur.

Er þetta rétt mat hjá OECD? „Það er rétt mat en við skulum taka með í reikninginn að það er geisilega mikil sjóðssöfnun í kerfinu. Við erum með mikla sjóðssöfnun í íslenska lífeyrissjóðakerfinu miðað við þjóðarframleiðslu. Það kemur ekkert á óvart út af fyrir sig þó að við stöndum svona vel," segir Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×