Sænskir lestarfarþegar gerðu uppreisn Óli Tynes skrifar 14. júlí 2010 10:41 X2000 hraðlestin.
Tíu mínútum eftir að X2000 hraðlestin frá Stokkhólmi til Gautaborgar lagði af stað í gær varð í henni vélarbilun. Lestin stoppaði á milli tveggja jarðganga. Og þar sat hún í steikjandi sólarhitanum í sjö klukkustundir áður en tókst að finna dráttarvagn sem gat dregið hana inn á næstu lestarstöð. Lestin var full af farþegum og hitinn jókst jafnt og þétt þartil hann að sögn farþega var kominn yfir fimmtíu gráður. Farþegarnir æptu á starfsfólkið að opna dyrnar og hleypa sér út en fékk þau svör að öryggisreglur bönnuðu það. Þegar leið yfir mann í einum lestarklefanum var sessunauti hans nóg boðið. Hann tók brunaöxi og braut gluggann. Loks eftir sjö klukkustundir var hægt að draga lestina á brautarstöð þar sem önnur lest beið þeirra. Sú lest bilaði einnig, en ekki eins lengi. Farþegarnir komust loks til Gautaborgar eftir þrettán klukkustunda hryllingsferð. Venjulega tekur ferðin þrjár klukkustundir. Sænska Aftonbladet segir að svo virðist sem Sænsku járnbrautirnar hafi enga neyðaráætlun um hvernig sé hægt að hjálpa farþegum undir svona kringumstæðum. Talsmaður fyrirtækisins var spurður að því hvað þeir hefðu gert ef einhver farþeganna hefði orðið alvarlega veikur. -Það veit ég satt að segja ekki, var svarið.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira