Dældu eldsneyti frá varðskipi yfir í þyrlu - myndir 9. mars 2010 13:32 MYND/Guðmundur St. Valdimarsson
Nýverið var þyrlueldsneyti í fyrsta sinn dælt á Líf, þyrlu Landhelgisgæslunnar meðan hún var á lofti yfir íslensku varðskipi. Í tilkynningu frá Gæslunni segir að slíkt sé afar mikilvægt að geta gert þegar verið er í aðgerðum á hafi úti og langt fyrir þyrlu að fara til eldsneytistöku. „Gekk æfingin í alla staði vel en undanfarið hafa varðskip og þyrla Landhelgisgæslunnar æft verklag vegna þessa án þess að eldsneyti væri dælt á þyrluna," segir ennfremur. Við eldsneytisáfyllinguna er notaður þyrlueldsneytis búnaður en um borð í varðskipinu geta verið 2500 lítrar eldsneytis. „Gengur áfyllingin þannig fyrir sig að þyrla tilkynnir um að hún þurfi á eldsneyti að halda frá skipinu. Áhöfn skipsins gerir klárt fyrir eldsneytis afhendingu með því að taka slöngu upp á þyrluþilfar, er hún lögð niður í buktum og síðan tengd við bakrennsli til eldsneytistanks. Er síðan dælustöðin sett í gang og eldsneytinu hringrásað í 15 mínútur. Er þá allt tilbúið til að taka á móti þyrlunni," segir einnig. Á meðfylgjandi myndum sem Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður tók má fylgjast með aðgerðinni í heild sinni. TF-LIF kemur yfir Ægi til eldsneytistöku.Þyrlan kemur yfir skipið á bakborða, halda bæði þyrla og skip stefnu upp í vind. Sigmaður þyrlunnar Henning Þ. Aðalmundsson kemur niður á þilfar Ægis til að fylgjast með eldsneytistökunni.Sigmaðurinn að koma niður á þilfarið. Óskar Á. Skúlason háseti tekur á móti honum.Óskar ásamt Sævari M. Magnússyni háseta tengja áfyllingar slönguna við spilkrók þyrlunnar .Áhöfn þyrlunar hífir til sín áfyllingar slönguna.Óskar Óskarsson spilmaður tekur á móti slöngunni. Þórarinn Ingi Ingason flugstjóri heldur vélinni stöðugri yfir á meðan á áfyllingu stendur.Spilmaðurinn, sem jafnframt er flugvirki tengir jarðbindivír við þar til gerðan punkt í þyrlunni og slönguna við áfyllistút á þyrlunni.Allt tilbúið til að dæla eldsneytinu upp til þyrlunar.Spilmaður gefur merki til dekkstjóra skipsins að hefja dælingu.Snorre Grail stýrimaður dælir upp eldsneytinu og Óskar og Sævar halda slöngunni til á meðan. Þegar nægt magn er komið á þyrluna gefur spilmaður merki til dekkstjóra um að stöðva dælingu.Að dælingu lokinni er áfyllistútinn aftengdur og honum slakað niður á þilfar varðskipsins.Óskar og Sævar taka á móti slöngunni. Slangan og jarðbindivírinn aftengd frá spilvírnum og lýkur þar með aðgerðinni.Sigmaðurinn hífður aftur upp í þyrluna að dælingu lokinni.Líf heldur til annarra starfa með aukið eldsneyti innanborðs.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Fleiri fréttir Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Sjá meira