Innlent

Ungt fólk fari ekki í ljósabekki

Dag er tekið að lengja og styttist í sumarið. Skiptar skoðanir eru um ágæti sólbaða. Nordicphotos/Getty Images
Dag er tekið að lengja og styttist í sumarið. Skiptar skoðanir eru um ágæti sólbaða. Nordicphotos/Getty Images
Landlæknisembættið hefur hafið átak þar sem fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra er bent á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki.

Skilaboðin eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Krabbameinsfélaginu, Landlæknisembættinu og Lýðheilsustöð.

Þetta er sjöunda árið sem farið er í fræðsluherferð undir slag-orðinu „Hættan er ljós“, að því er fram kemur á vef Landlæknis.

„Vakin er athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól,“ segir þar og bent á að tíðni húðkrabbameins hafi aukist mikið á síðustu áratugum. - óká



Fleiri fréttir

Sjá meira


×