Innlent

Jón Bjarnason víki fyrir Ögmundi

Heimir Már Pétursson skrifar
Allar líkur eru á að Ögmundur Jónasson sé aftur á leið í ráðherrastól og að Jón Bjarnason víki úr ríkisstjórn. Frekari uppstokkun á stjórnarliðinu er ekki útilokuð.

Samkvæmt heimildum fréttastofunnar verður Ögmundur Jónasson, sem sagði af sér ráðherradómi hinn 30. september í fyrra, aftur ráðherra innan mánaðar, eða strax eftir páska. Líklegast er að Jón Bjarnason víki þá sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og enn frekari uppstokkun í ríkisstjórn kemur til greina.

Það yrði hluti af sáttum við óróleikahópinn í þingliði Vinstri grænna, en hann telur eftir atvikum allt að sex þingmenn af fjórtán, þar sem Ögmundur fer fremstur í flokki. Aðrir í hópnum eru Lilja Mósesdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Jón Bjarnason, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Atli Gíslason. Þessar sættir eru nauðsynlegar svo ríkisstjórnin geti lagt upp í erfið mál með öruggan meirihluta fyrir afgreiðslu þeirra.

Þetta á jafnvel við um nýjan Icesave samning sem forysta stjórnarandstöðunnar ákveddi að styðja ekki, þótt það liggi ekki fyrir á þessari stundu. Ríkisstjórnin myndi varla leggja slikan samning fyrir þing án þess að hafa allt stjórnarliðið með sér, minnug fyrri mistaka í þeim efnum. Ögmundur sagði á Alþingi á mánudag að samstaða stjórnar og stjórnarandstöðu hefði skilað árangri í Icesavedeilunni. En nú væri kominn annar tónn í leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Hann ætlaði ekki að taka þátt í því að fella ríkisstjórnina.

Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur einnig verið rætt að skipta út utanþingsráðherrunum tveimur, en það er þó ekki talið líklegt, þótt aðrir ráðherrar kunni að hafa stólaskipti innbirgðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×