Innlent

Virti ekki stöðvunarmerki og valt

Mynd/Anton Brink
Sautján ára stúlka slapp lítið meidd, þegar hún reyndi á ofsahraða að stinga lögregluna af á Gaulverjabæjarvegi, rétt austan við Selfoss, um níu leitið í gærkvöldi, en bíll hennar valt. Þá hafði hún mælst á tæplega 140 kílómetra hraða en þegar hún sinnti ekki stöðvunarmerki lögreglu, hóf hún eftirför.

Skömmu síðar missti stúlkan stjórn á bílnum, sem þeyttist út af veginum á mikilli ferð og valt heila veltu. Stúlkan var fyrst flutt á heilsugæslustöðina á Selfossi og þaðan á slysadeild Landsspítalans til frekari rannsókna, en bíllinn er ónýtur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×