Erlent

Krefjast þess að Wikileaks skili aftur leyniskjölum

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur krafist þess af forráðamönnum vefsíðunnar Wikileaks að þeir skili aftur leyniskjölum þeim um stríðið í Afganistan sem nýlega voru birt á síðunni og samhliða í þremur alþjóðlegum fjölmiðlum.

Þar að auki gerir ráðuneytið kröfu um að skjölunum verði eytt af vefsíðunni. Eins og áður hefur komið fram hefur Wikileaks ekki birt öll skjölin sem síðan hefur undir höndum en hyggst gera það í náinni framtíð.

Samkvæmt frétt um málið í Politiken hefur varnarmálaráðuneytið hótað forráðamönnum Wikileaks hertari aðgerðum gegn þeim ef þeir verði ekki við kröfum þess.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×