Stjórnin viðurkenni að Íslendingar þurfi betri samning 14. janúar 2010 12:12
Framsóknarmenn setja það sem skilyrði fyrir pólitískri samstöðu í Icesave málinu að ríkisstjórnin lýsi því yfir að Íslendingar þurfi betri samning. Þverpólitísk sátt í Icesave málinu er talin vera forsenda þess að Íslendingar geti hafið nýjar samningaviðræður við Breta og Hollendinga. „Við verðum að reyna það að minnsta kosti þó að við höfum ekki verið ánægð með það hvernig ríkisstjórnin hefur haldið á þessu," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, aðspurður hvort hann telji líklegt að pólitísk sátt náist í Icesave málinu. Hann segir að stjórnin hafi byrjað að senda út yfirlýsingar þar sem ítrekað hafi verið að Íslendingar ætluðu að ábyrgjast allar innistæður. „Síðan í framhaldinu koma alls konar yfirlýsingar um að yfir standi örvæntingarfullar viðræður við Breta og Hollendinga. Utanríkisráðherra segir að við séum í herkví. Þetta er ekki til þess fallið að hjálpa málstað Íslendinga. Þess vegna gerum við kröfu um það að ríkisstjórnin að minnsta kosti lýsi því yfir að við þurfum að fá betri samning. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að stjórnvöld í landinu taki að minnsta kosti undir með almenningi og þeim sem vilja okkur vel í útlöndum og segi að við þurfum að gera betur," segir Sigmundur Davíð.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira