Verðlaunafé Ólafs rennur til íslenskra og indverskra vísindamanna 14. janúar 2010 16:32 Við upphaf athafnar vegna afhendingar Nehruverðlaunanna. Frá vinstri: forsætisráðherra Indlands, forseti Íslands, forseti Indlands, varaforseti Indlands.
Pratibha Patil, forseti Indlands, afhenti fyrr í dag Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, Nehruverðlaunin við hátíðlega athöfn í Delí. Hann hyggst verja verðlaunafénu sem nemur um 13,5 milljónum króna til að styrkja samstarf íslenskra og indverskra vísindamanna. Ólafi var afhent verðlaunin að viðstöddum forsætisráðherra Indlands Manmohan Singh, varaforsetanum Mohammad Hamid Ansari, ráðherrum og fjölda indverskra áhrifamanna ásamt Soniu Gandhi leiðtoga Kongressflokksins. Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu Við athöfnina fluttu bæði forseti og varaforseti landsins ræður þar sem ítarlega var fjallað um framlag Ólafs Ragnars á alþjóðavettvangi á undanförnum áratugum. „Að því loknu flutti forseti Íslands þakkarræðu þar sem hann rakti samstarf sitt við Indiru og Rajiv Gandhi sem bæði voru forsætisráðherrar Indlands og fjölmarga aðra forystumenn landsins. Hann gerði síðan grein fyrir hvernig Íslendingar hefðu í krafti vísinda og rannsókna glímt við eldfjöll, jarðhita, jökla og auðnir sem setja sterkan svip á íslenska náttúru. Í krafti þeirrar þekkingar sem þannig hefði þróast gæti Ísland nú fært Indverjum mikilvæga reynslu og tækni. Þá rakti forseti einnig hvernig íslenskir jöklafræðingar og jarðvegsvísindamenn gætu orðið öflugir þátttakendur í að auka þekkingu Indverja og annarra þjóða í Asíu á því sem er að gerast á Himalajasvæðinu," segir í tilkynningunni. Þá tilkynnti Ólafur að hann hefði ákveðið að verja verðlaunafénu sem nemur um 13,5 milljónum íslenskra króna til að styrkja samstarf íslenskra og indverskra jöklafræðinga og jarðvegsvísindamanna og gefa indverskum háskólastúdentum kost á að öðlast þekkingu og þjálfun á Íslandi.
Tengdar fréttir Forseti og frú í opinbera heimsókn til Indlands Opinber heimsókn forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar til Indlands hófst í morgun, þriðjudaginn 12. janúar, í Mumbai en í heimsókninni fer forseti einnig til Delhi og Bangalore. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að forseti Íslands muni eiga fundi með forseta Indlands frú Patibha Patil og varaforseta landsins Mohammad Hamid Ansari sem og forsætisráðherranum Manmohan Singh, utanríkisráðherranum og fjölda annarra ráðamanna. 12. janúar 2010 11:22 Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira
Forseti og frú í opinbera heimsókn til Indlands Opinber heimsókn forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar til Indlands hófst í morgun, þriðjudaginn 12. janúar, í Mumbai en í heimsókninni fer forseti einnig til Delhi og Bangalore. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að forseti Íslands muni eiga fundi með forseta Indlands frú Patibha Patil og varaforseta landsins Mohammad Hamid Ansari sem og forsætisráðherranum Manmohan Singh, utanríkisráðherranum og fjölda annarra ráðamanna. 12. janúar 2010 11:22